Erlent

Vaxandi spenna í Bandaríkjunum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Í Cleveland og víðar lögðust mótmælendur á götur eins og dauðir væru, og sýndu einnig lista með nöfnum yfir fólk sem lögreglumenn hafa orðið að bana á síðustu árum.
Í Cleveland og víðar lögðust mótmælendur á götur eins og dauðir væru, og sýndu einnig lista með nöfnum yfir fólk sem lögreglumenn hafa orðið að bana á síðustu árum. Vísir/ap
Vonbrigði með úrskurð ákærukviðdóms í máli Michaels Brown hafa brotist út með mótmælum í borgum og bæjum víða um Bandaríkin. Ákveðið var að sækja ekki til saka lögreglumanninn, sem varð honum að bana í sumar úti á götu í Ferguson, einu úthverfa borgarinnar St. Louis.

Mótmælendur hafa rifjað upp og minnt á fjölmörg sams konar mál, þar sem hvítir löggæslumenn skjóta unga óvopnaða blökkumenn til bana. Aðeins tveimur dögum áður en ákærukviðdómur kynnti niðurstöðu sína hafði lögreglumaður í Cleveland skotið tólf ára dreng til bana. Lögregla, dómsvald og stjórnvöld öll í Bandaríkjunum eru sökuð um djúpstæða kynþáttafordóma, sem nú megi ekki draga lengur að uppræta.

Fjölskylda Michaels Brown hefur allt frá fyrsta degi lagt áherslu á að fólk forðist ofbeldi og leyfi málinu að fara sína leið í gegnum kerfið. Nú segir lögmaður foreldra hans, Benjamin Crump, að þetta ferli sé rofið: „Úti um öll Bandaríkin, hvort sem það er í New York, Los Angeles eða Cleveland, eru lögreglumenn að drepa ungt hörundsdökkt fólk,“ sagði hann á blaðamannafundi. „Og saksóknararnir á staðnum setja saman þennan „sanngjarna og óhlutdræga“ ákærukviðdóm, og það heldur áfram að skila þessum sömu niðurstöðum.“

Þá eru Sameinuðu þjóðirnar farnar að lýsa áhyggjum sínum af hlutskipti blökkumanna í Bandaríkjunum. Zeid Raad al Hussein, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, sendi frá sér yfirlýsingu um málið á þriðjudag: „Ég hef þungar áhyggjur af því að hlutfallslega of margir ungir Bandaríkjamenn af afrískum uppruna deyja eftir viðskipti við lögreglumenn, að hlutfallslega of margir Bandaríkjamenn af afrískum uppruna sitja í fangelslum og hlutfallslega of margir bíða aftöku,“ segir þar.

Barack Obama Bandaríkjaforseti brýndi hins vegar fyrir fólki að dómsvaldið þyrfti að hafa sinn gang: „Við erum samfélag sem byggir á réttarríkinu, og við þurfum þess vegna að sætta okkur við að það var ákærukviðdómurinn sem átti að taka þessa ákvörðun,“ sagði hann í ávarpi sínu á mánudag.

Það vakti svo athygli fjölmiðla vestra að þessi viðbrögð forsetans voru gjörólík viðbrögðum hans á síðasta ári þegar kviðdómur í Flórída sýknaði George Zimmerman. Zimmerman var sjálfboðaliði í nágrannavörslu og skaut Trayvon Martin, sautján ára þeldökkan menntaskólapilt sem var á leiðinnni heim til sín eftir að hafa skroppið út í búð.

Þá lýsti Obama eigin reynslu af því þegar hann, sem ungur maður, mætti tortryggni, undarlegum augnagotum og hreinlega andúð þegar hann var á ferðinni innan um fólk: „Trayvon Martin hefði getað verið ég fyrir 35 árum.“

Eftir að Brown féll fyrir byssukúlum lögreglumannsins í Ferguson í sumar skrifaði móðir Trayvons Martin foreldrum Browns bréf, þar sem hún segir að dauði þeirra megi ekki verða til einskis. Baráttan fyrir réttlæti þurfi nú að eflast um allan helming:

„Við munum ekki lengur láta líta fram hjá okkur. Við munum tengjast böndum, halda áfram baráttu okkar fyrir réttlætinu og sjá til þess að þeir muni eftir börnum okkar í réttu ljósi.“

Skotnir af lögreglu

Í hverjum mánuði verða lögreglumenn í Bandaríkjunum tugum eða jafnvel hundruðum manna að bana. Oft eru það óvopnuð ungmenni og oftar en ekki með dökkan hörundslit. Fáein dæmi eru hér nefnd:

Tamir Rice, 12 ára, skotinn til bana á leikvelli í borginni Cleveland 22. nóvember, 2014. Hann var að sveifla byssu sem ekki var vitað hvort væri leikfangabyssa.

Michael Brown, 18 ára, skotinn 9. ágúst 2014 í Ferguson, einu úthverfa St. Louis. Lögreglumaðurinn Darren Wilson þarf ekki að svara til saka.

Kendrec McDade, 19 ára nemi í Pasadena, Flórída, margskotinn í brjóstið í húsasundi 24. mars árið 2012. Hann var óvopnaður, en lögreglumenn voru sýknaðir.

Trayvon Martin, 18 ára nemi, skotinn 26. febrúar 2012 í bænum Sanford í Flórída af sjálfboðaliða í nágrannagæslu, sem þótti hann grunsamlegur og elti hann uppi. Banamaðurinn var sýknaður.

Sean Bell, 23 ára, skotinn til bana í Queens-hverfi í New York 25. nóvember 2006. Hann hafði ætlað að gifta sig síðar um daginn. Þrír af fimm lögreglumönnum sóttir til saka, en allir sýknaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×