Enski boltinn

Varamarkmaður Sutton afgreiddi á barnum og fékk sér bita á bekknum | Myndband

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Varamarkmanni Sutton, hinum 45 ára gamla Wayne Shaw, er greinilega margt til lista lagt líkt og sást í leik Arsenal og Sutton í ensku bikarkeppninni í kvöld.

Í hálfleik sást til Shaw afgreiða á barnum á heimavelli Sutton, Gander Green Lane. Væntanlega hefur ekki veitt af enda völlurinn stútfullur, ekki á hverjum degi sem stórlið Arsenal kemur í heimsókn.

Shaw, sem vegur 127 kíló, virðis hafa orðið svangur við að afgreiða í hálfleik og um miðbik leiksins sást til hans á á bekknum að gæða sér á dýrindis böku líkt og sjá má í myndbandinu hér að ofan.

Bakan hefur verið ágætis sárabót fyrir Shaw sem fylgdist með liði sínu detta úr úr ensku bikarkeppninni eftir 0-2 tap gegn Arsenal.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×