Handbolti

Valur og ÍBV bjóða upp á fullt af tvíhöfðum í úrslitakeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þetta verður fyrsta úrslitakeppni Ólafs Stefánssonar sem þjálfara.
Þetta verður fyrsta úrslitakeppni Ólafs Stefánssonar sem þjálfara. Vísir/Daníel
Karla og kvennalið ÍBV og Vals mætast í undanúrslitum Olís-deildanna í handbolta í ár og hafa félögin ákveðið að bjóða upp á mögulega fjóra tvíhöfða á næstu vikum á meðan það kemur í ljós hvort félagið eignast lið í lokaúrslitum.

ÍBV er með heimavallarréttinn á móti Val í undanúrslitum Olís-deildar karla en Valur er með heimavallarréttinn á móti ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar kvenna. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.

Einvígi ÍBV og Vals í Olís-deild karla hefst á þriðjudagskvöldið út í Eyjum en eftir það fara leikirnir fram á sama tíma eftir að mótanefnd HSÍ raðaði leikjunum upp á nýtt í samráði við ÍBV og Val.

Til þess að ná fram þessum tvíhöfðum þurfti að breyta fjórum leikjum í Olís deildar kvenna sem og tímasetningum á leikjum í Olís deild karla.



Undanúrslitaeinvígi félaganna verður því spilað svona:

Þri. 22.apríl kl.19.00   Vestmannaeyjar  ÍBV - Valur   Olís karla

Fim. 24.apríl kl.16.00   Vodafone höllin Valur - ÍBV  Olís karla

Fim. 24.apríl  kl.14.00   Vodafone höllin Valur - ÍBV    Olís kvenna

Sun. 27.apríl  kl.16.00   Vestmannaeyjar  ÍBV - Valur  Olís kvenna

Sun. 27.apríl   kl.18.00   Vestmannaeyjar  ÍBV - Valur  Olís karla

Þri. 29.apríl kl.17.45   Vodafone höllin Valur - ÍBV     Olís kvenna

Þri. 29.apríl kl.19.45   Vodafone höllin Valur - ÍBV  Olís karla

Fim. 1.maí kl.14.00   Vestmannaeyjar  ÍBV - Valur     Olís kvenna

Fim. 1.maí kl.16.00   Vestmannaeyjar  ÍBV - Valur Olís karla

Lau. 3.maí kl.16.00   Vodafone höllin Valur – ÍBV   Olís kvenna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×