Handbolti

Valur fær liðsstyrk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gerður klæðist rauðu á næsta tímabili.
Gerður klæðist rauðu á næsta tímabili. mynd/heimasíða vals
Handboltakonan Gerður Arinbjarnar er genginn í raðir Vals frá HK.

Gerður, sem er 21 árs, skrifaði undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Vals í gær.

Gerður skoraði 42 mörk í 16 leikjum fyrir HK í Olís-deildinni í vetur. Kópavogsliðið endaði í 9. sæti og komst ekki í úrslitakeppnina.

Valskonur lentu í 6. sæti og töpuðu svo fyrir Stjörnunni í þremur leikjum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×