Valgerður minnist Rúna Júl 5. desember 2008 20:45 Valgerður Sverrisdóttir.
Rúnar Júlíusson hefur verið hluti af lífi Valgerðar Sverrisdóttur, formanns Framsóknarflokksins, frá Kvennaskólaárum hennar. ,,Hann hefur verið hluti af lífi mínu frá unglingsárunum þegar við vinkonurnar í Kvennó áttum hann sem átrúnaðargoð og dýrkuðum Hljóma," segir Valgerður í pistli á heimasíðu sinni. Rúnar lést í nótt af völdum hjartaáfalls. Fjölmargir hafa minnst hans í dag með hlýum orðum. Bæði fólk sem þekkti Rúnar persónulega og aðrir sem hrifust af tónlist hans. Valgerður er ein af mörgum sem hrifust af tónlistinni og tengir góðar minningar við hana. Valgerður segir að það sé margt að minnast frá sjöunda áratugnum. Bítlarnir komu fram á sjónarsviðið og ollu byltingu. ,,Og við eignuðumst okkar eigin Bítla, nefnilega Hljóma frá Keflavík." Ráðherran fyrrverandi rifjar upp á að sunnudögum hafi verið haldinn böll fyrir unglinga í Skátaheimilinu við Snorrabraut og þar hafi Hljómar spilað. ,,Þar mættum við vinkonurnar og tókum fullan þátt í gleðinni. Og við gerðum meira. Við biðum fyrir utan Glaumbæ þar sem Hljómar æfðu til að geta horft á þá ganga frá húsinu og út í Bensinn sem var hinn eini sanni Hljómabíll og bar einkennisstafina Ö-982." Valgerður segist hafa átt sérstaka Hljómabók þar sem hún safnaði myndum af Hljómum og öllu sem hægt var að tengja við hljómsveitina. ,,Þessi bók er nú í vörslu tónlistarsafnsins í Reykjanesbæ. Það var Rúnar sem veitti bókinni viðtöku fyrir hönd safnsins. Lífið skiptist í tímabil, að mati Valgerðar. ,,Eitt af tímabilunum í mínu lífi er tímabilið með Hljómum frá Keflavík. Blessuð sé minningin um Rúnar Júlíusson." Pistil Valgerðar er hægt að lesa hér.
Tengdar fréttir Rúnar Júlíusson er látinn Rúnar Júlíusson tónlistarmaður og útgefandi lést aðfararnótt föstudagsins 5. desember af völdum hjartaáfalls. Útgáfufyrirtæki hans Geimsteinn hélt árlega útgáfukynningu sína á veitingastaðnum Ránni fimmtudagskvöldið 4. desember þar sem listafólk útgáfunnar var saman komið. Rúnar var að fara á svið til að syngja og var að teygja sig eftir gítarnum þegar hann kenndi sér meins. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann andaðist. Guðmundur Rúnar Júlíusson fæddist í Keflavík 13. apríl 1945, sonur Júlíusar Eggertssonar múrarameistara og Guðrúnar Stefánsdóttur Bergmann. 5. desember 2008 09:51 Hemmi og Bó minnast Rúnars Júlíussonar Einn af risum íslenskrar dægulagartónlistar, Rúnar Júlíusson, er fallinn frá. Félagar hans segja að hans verði sárt saknað og leitun sé að eins góðum vini. 5. desember 2008 19:30 Mikill missir „Það eru bara fáir útvaldir sem fá að kveðja svona, þegar þeir eru að gera sig klára að fara á svið," segir Bubbi Morthens, samstarfsmaður Rúnars Júlíussonar til margra ára. „Auðvitað hefði ég viljað vera með Rúnari í 10-15 ár í viðbót ef heilsa hans hefði leyft, en úr því þetta þetta er orðin staðreynd, þá er miklu meiri gleði í hjarta mínu að hafa fengið að kynnast Rúnari en sorg." 5. desember 2008 11:44 Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Fleiri fréttir Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Sjá meira
Rúnar Júlíusson er látinn Rúnar Júlíusson tónlistarmaður og útgefandi lést aðfararnótt föstudagsins 5. desember af völdum hjartaáfalls. Útgáfufyrirtæki hans Geimsteinn hélt árlega útgáfukynningu sína á veitingastaðnum Ránni fimmtudagskvöldið 4. desember þar sem listafólk útgáfunnar var saman komið. Rúnar var að fara á svið til að syngja og var að teygja sig eftir gítarnum þegar hann kenndi sér meins. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann andaðist. Guðmundur Rúnar Júlíusson fæddist í Keflavík 13. apríl 1945, sonur Júlíusar Eggertssonar múrarameistara og Guðrúnar Stefánsdóttur Bergmann. 5. desember 2008 09:51
Hemmi og Bó minnast Rúnars Júlíussonar Einn af risum íslenskrar dægulagartónlistar, Rúnar Júlíusson, er fallinn frá. Félagar hans segja að hans verði sárt saknað og leitun sé að eins góðum vini. 5. desember 2008 19:30
Mikill missir „Það eru bara fáir útvaldir sem fá að kveðja svona, þegar þeir eru að gera sig klára að fara á svið," segir Bubbi Morthens, samstarfsmaður Rúnars Júlíussonar til margra ára. „Auðvitað hefði ég viljað vera með Rúnari í 10-15 ár í viðbót ef heilsa hans hefði leyft, en úr því þetta þetta er orðin staðreynd, þá er miklu meiri gleði í hjarta mínu að hafa fengið að kynnast Rúnari en sorg." 5. desember 2008 11:44