Golf

Valdis og Ólafía á meðal efstu kylfinga

Valdís Þóra.
Valdís Þóra. mynd/gsí
Kylfingarnir Valdís Þóra Jónsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir stóðu sig vel á móti í Noregi.

Þær voru að keppa á móti í LETAS-mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumótaröðin í Evrópu.

Valdís Þóra hafnaði í 12. sæti mótsins sem fór fram í Larvik. Hún lék samtals á þrem höggum undir pari. Hún lék hringina þrjá 213 höggum (74-68-71) og var hún fimm höggum frá efsta sætinu.

Ólafía Þórunn lauk aftur a móti leik á pari. Hún lék samtals á 216 höggum (75-69-72) og endaði í 19. sæti.

Ólafía Þórunn.mynd/gsí



Fleiri fréttir

Sjá meira


×