Útlit fyrir metþátttöku í maraþoninu Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 14. ágúst 2012 13:17 Frá Reykjavíkurmaraþoni í fyrra. mynd/ daníel.
Útlit er fyrir metþátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og eru þátttakendur að hlaupa lengri vegalengdir en áður. Tæplega sjöþúsund og níuhundruð hlauparar hafa skráð sig til þátttöku nú þegar fjórir dagar eru til stefnu og er það sextán prósenta aukning ef miðað er við sama tíma í fyrra. Flestir kjósa að hlaupa 10 kílómetra eða um þrjúþúsund og áttahundruð, og er það tæplega þrjátíu prósenta aukning frá fyrra ári. Þátttakendum í hálfu maraþoni fjölgar um fimmtán prósent á milli ára og maraþonhlaupurum um tæp tuttugu prósent. „Það hefur borið á auknum hlaupaáhuga hjá þjóðinni undanfarin ár. Ég held að flestir geti samþykkt það og það sýnir sig í þessu," segir Gerður Þóra Björnsdóttir upplýsingafulltrúi maraþonsins. Rúmlega fimmtán hundruð útlendingar eru skráðir til leiks og er það tuttugu prósenta aukning frá því í fyrra. Hún segir líka að aldrei hafi fleiri útlendingar tekið þátt og þeir séu mikið í lengri vegalengdum. Tæpar nítján milljónir hafa safnast í áheitum til góðra málefna í tengslum við maraþonið en á sama tíma í fyrra höfðu safnast tæpar sautján milljónir. Hinn tólf ára gamli Viktor Snær Sigurðsson, sem hleypur fyrir systur sína Sunnu og AHC samtökin er sá sem hefur safnað einna mest í einstaklingssöfnuninni, eða rúmri milljón. Forskráningu á netinu lýkur á morgun klukkan fjögur áhugasamir geta samt sem áður skráð sig á skráningarhátíðinni á föstudag. Útlit er fyrir bjartviðri í Reykjavík um helgina og Gerður segir að það skipti sköpum þegar kemur að skráningu í styttri hlaupin.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Sjá meira