Erlent

Utanríkisráðherrar ESB ræða hertar aðgerðir gagnvart Rússum

Heimir Már Pétursson skrifar
Líkamsleifar fólks sem fórst með flugvél Malaysian í Úkraínu á fimmtudag eru á leið til Hollands þar sem reynt verður að bera kennsl á þær. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins komu saman til fundar í dag til að ræða hertar refsiaðgerðir gagnvart Rússum vegna afskipta þeirra af innanríkismálum Úkraínu.

Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra hefur verið í hópi fulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE)  sem var með fyrstu erlendu aðilunum sem komu að brakinu í Donetsk héraði.  Aðskilnaðarsinnar komu líkamsleifum þeirra sem fórust fyrir í kældum lestarvögnum.  Stefán Haukur ásamt öðrum fulltrúum ÖSE fóru með lestinni í nótt út af áhrifasvæði aðskilnaðarsinna ásamt tólf fulltrúum frá Malasíu. En lestin kom til borgarinnar Kharkiv upp úr klukkan níu í morgun.

„Nú eru tæknimenn frá Hollandi og fleiri löndum sem munu fara í það að ganga betur frá og síðan verður flutningur til Hollands þar sem kennslaferlið fer af stað. Þar sem farið verður í það að vinna frekari rannsókn á að bera kennsl á lík og líkamsleifar,“ segir Stefán Haukur.

Samkomulag er um að Hollendingar, sem misstu 189 manns af þeim 398 sem fórust með flugvélinni, sjái um að bera kennsl á fólkið. Forsætisráðherra Hollands reiknar með að fyrstu líkamsleifarnar komi til Eindhoven um miðjan dag á morgun.

„Þegar flugvélin kemur til Eindhoven verða líkamsleifarnar fluttar í Korporal Oud Heuster herstöðina. Um leið og kennsl verða borin á einhvern verða aðstandendur látnir vita og enginn annar,“ segir Rutte.

Eiginleg rannsókn opinberra rannsóknaraðila á vettvangi hófst í gær og hefur verið framhaldið í dag, en töluvert hefur verið átt við vettvanginn frá því flugvélin var skotin niður á fimmtudag.

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins komu saman til fundar í Brussel í dag til að ræða hertari refsiaðgerðir gegn Rússum til að þrýsta á þá að láta af stuðningi við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Rutte segir að í huga Hollendinga hafi staðan í Úkraínu gerbreyst síðast liðinn fimmtudag.

„Hvað okkur varðar kemur allt til greina, efnahagslegar, fjárhagslegar og pólitískar aðgerðir. Í okkar huga er forgangsmál að fá líkamsleifarnar til okkar,  að sjálfstæð rannsókn fari fram og réttlætið nái fram að ganga,“ segir Rutte.

Þá voru mótmæli fyrir utan sendiráð Rússlands og Úkraínu í Kuala Lumpur í Malasíu í morgun.

„Það er ekki nóg að afhenda líkamsleifarnar og flugritana. Við krefjumst þess að réttlætinu verði fullnægt. Við viljum komast að því hverjir hinir raunverulegu sökudólgar eru, glæpamennirnir, samverkamennirnir;  sem fullyrt hafa að flugvélin hafi verið skotin niður. Við viljum vita hverjir það voru sem skutu flugvélina niður,“ sagði Khairul Azwanharuni, einn skipuleggjenda mótmælanna í Kuala Lumpur í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×