Handbolti

Utan vallar: Handboltaáhugafólk fékk óvænta veisluþjónustu í tölfræði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Árni Ólafsson skorar í leiknum í gær.
Guðmundur Árni Ólafsson skorar í leiknum í gær. Vísir/Ernir
Tölfræði er framandi hugtak fyrir Handknattleikssamband Íslands en handboltamenn eiga hauk í horni í handboltatölfræðisíðunni hbstatz.is. Handboltaáhugafólk á Íslandi fékk að kynnast því í gær hvernig það er að fá tölfræðiupplýsingar um leiki í Olís-deild karla.

Hbstatz-síðan bauð þá upp á fría tölfræðilýsingu á stórleik FH og Hauka í síðustu umferð Olís-deildarinnar. Hér hefur íslenskur handboltaáhugamaður útbúið aðgengilega síðu þar sem nálgast má helstu tölfræðiupplýsingar bæði á meðan leik stendur sem og eftir hann.

Hbstatz hefur jafnframt fóðrað áhugasama á Twitter-síðu sinni sem skemmtilegum staðreyndum sem lesa má úr tölfræðinni. Þar má meðal annars, auk allra helstu tölfræðiþátta í handbolta, sjá tölfræðieinkunn leikmanna til að finna út hverjir stóðu sig best í vörn og hverjir stóðu sig best í sókn.  

Skotnýting, stoðsendingar, varin skot, stolnir boltar, tapaðir boltar og sköpuð skotfæri. Allt þetta og miklu meira má nú sjá frá leik FH og Hauka frá því í gærkvöldi. Hér má sjá tölfræði leiksins.

Það er ljóst að samstarf á milli Handknattleikssambands Íslands og Hbstatz er liggur við mikilvægara en að mynda nýja ríkisstjórn í landinu. Handboltinn þarf nauðsynlega að koma inn í nútímann og bjóða handboltaáhugafólki upp á traustar og haldgóðar upplýsingar um frammistöðu leikmanna í leikjum Olís-deildanna.





 

Það er hægt að nálgast tölfræði flestra deildra í Evrópu á auðveldan hátt og hafa þýska, danska og sænska deildin öll tekist stór skref í að auka upplýsingaflæði sitt á síðustu árum. Hér erum við með íslenskt handboltaforrit sem hefur meira að segja komið fram með nýjungar eins og „löglegar stöðvanir“ sem hjálpa til að meta frammistöðu leikmanna í vörn.

Hbstatz-forritið hefur verið í þróun síðustu mánuði og þótt að lengi megi gott bæta þá er enginn vafi á því að það er tilbúið í það verkefni að halda utan um tölfræði handboltaleikja á Íslandi.

Það hefur verið pressa á Handknattleikssambands Íslands að koma með tölfræðiforrit í miklu meira en áratug en einu viðbrögð sambandsins er að segja að þetta sé í vinnslu eða að þetta sé mögulega að detta inn fyrir næstu úrslitakeppni.

Eftir að hafa heyrt sömu fátæklegu svörin í áratug er nokkuð ljóst að HSÍ þarf á hjálp að halda. Þeir eru týndir upp á fjöllum þegar kemur að tölfræði handboltans. Björgunarsveitin Hbstatz er sem betur fer á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×