Innlent

Úrkoma alla daga nema tvo í júní

Linda Blöndal skrifar
Eftirspurn eftir sólarlandaferðum hefur aukist mjög mikið á undanförnum dögum. Sólskinsstundir í Reykjavík hafa ekki verið færri í 19 ár og úrkoman hefur ekki verði meiri síðan samfelldar mælingar hófust árið 1920, segja tölur Veðurstofu Íslands.

 Júní síðastliðinn er í hópi úrkomusömustu júnímánaða sem vitað er um í Reykjavík og það sem af er júlímánuði hefur verið úrkoma alla daga nema tvo hér sunnanlands. Ekki virðist útlit fyrir miklar breytingar nema í einstaka landshluta.



Síðasti mánuður var reyndar sögulega hlýr um allt land og ekkert sérlega vindasamur samkvæmt tölum Veðurstofunnar. Meðalhitinn í Reykjavík var rúmar elllefu gráður, einu stigi meira en undanfarin tíu ár. Meðalhitinn á landinu hefur verið á bilinu átta til tólf stig.

Fólk rýkur til sólarlanda

Júlímánuður byrjaði með margra daga lægðargangi yfir landið allt. Og það er úrkoman sem hefur núna mestu áhrifin á ferðir Íslendinga í sumarfríi enda varla hundi út sigandi og það rignir nánast upp á hvern einasta dag á höfuðborgarsvæðinu. Ferðskrifstofur sem selja sólarlandaferðir finna fyrir mikilli ásókn núna í sólarlandaferðir og anna vart eftirspurn, aukningin er um meira en fimmtung miðað við í fyrra. 

Margrét Helgadóttir, framkvæmdastjóri Úrval útsýn sagði í fréttum Stöðvar tvö í kvöld að um tuttugu prósenta aukning hafi verið á sölu ferða. Sama segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita ferðaskrifstofu og að fólk panti með mjög stuttum fyrirvara.  Algengt verð fyrir sólarlandaferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu í tvær vikur er á bilinu sex til sjö hundruð þúsund krónur og eru margar þeirra keyptar með örstuttum fyrirvara, fáist sæti það er að segja.

Úrkoma ekki meiri síðan 1920

Eins og reikna má með þá hafa sólarstundirnar í júní líka verið mun færri víðast hvar um landið en áður. Sólskinsstundir í Reykjavík hafa ekki verið færri í 19 ár og úrkoman þar í sama mánuði hefur ekki verði meiri síðan samfelldar mælingar hófust árið 1920.

Veðurstofan gefur ekki út veðurspá nema fyrir næstu tíu daga en búast má þó við eitthvað minni úrkomu í ágúst, samkvæmt veðurfræðingi þar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×