Handbolti

Uppbygging landsliðsins gæti tekið tíma

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, huggar svekktan fyrirliðann, Guðjón Val Sigurðsson, eftir tapið fyrir Króatíu.
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, huggar svekktan fyrirliðann, Guðjón Val Sigurðsson, eftir tapið fyrir Króatíu. vísir/Valli
Strákarnir okkar sneru til síns heima í gær eftir sneypuför til Póllands. Í fyrsta sinn síðan 2004 fór karlalandsliðið í handbolta ekki upp úr riðli á Evrópumótinu. Þeir voru sendir heim eftir rassskell gegn Króatíu, en tapið óvænta gegn Hvíta-Rússlandi kom liðinu í nær ómögulega stöðu.

Fréttablaðið leitaði til þriggja þjálfara í Olís-deildunum hér heima til að gefa sitt álit á frammistöðunni og framhaldinu. Þeir eru Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla, og þjálfarar karla- og kvennaliða Gróttu, Gunnar Andrésson og Kári Garðarsson.

Engar taktískar breytingar

Allir þrír eru sammála um hið augljósa; varnarleikur Íslands var langt frá því að vera nógu góður í seinni tveimur leikjunum. Eftir fínan varnarleik gegn Noregi, þar sem liðið náði 29 löglegum stöðvunum, voru aðeins níu slíkar gegn Hvít-Rússum og Króötum. Mótherjarnir voru varla snertir.

„Ég hef nú bara aldrei séð jafn skrítinn handboltaleik eins og á móti Hvíta-Rússlandi. Þar var algjört hrun í varnarleiknum. Ég saknaði þess að sjá menn stíga upp í vörninni og klárar sínar stöður. Það vantaði líka allar taktískar breytingar í 6-0-vörninni. Svo hjálpaði ekki til að sóknarleikurinn á móti Kró­atíu var kominn í þrot,“ segir Einar Andri Einarsson um varnarleikinn og Gunnar er sammála.

„Við vorum ekki nógu klókir og svo var ekkert plan B fyrst þessi hefðbundna vörn okkar virkaði ekki. Ofan í þennan varnarleik fáum við svo enga markvörslu en þetta er grunnurinn að árangri. Það hefur verið smá endurnýjun í mannskap í varnarleiknum. Við erum ekki með sama mannskap og þegar þessi vörn virkaði hvað best. Ég er ekki viss um að þessi vörn henti þessu liði. Mér fannst þetta aldrei sannfærandi,“ segir Gunnar.

vísir/valli
Töluðum okkur upp

Íslenska liðið átti heldur ekki gott mót í Katar fyrir ári en fín spilamennska landsliðsins eftir það skilaði sér engan veginn inn í mótið í Póllandi. Var verið að ofmeta liðið fyrir EM?

„Það sem gaf mér ákveðna von var að liðið hefur oft verið í verra standi. Aron er ferskari og Guðjón Valur. Það er kannski bara Lexi sem kom svolítið hnjaskaður inn í mótið. Mér fannst ástæða til að vera bjartsýnn út af því en kannski ekki þegar horft er á undirbúninginn og og síðasta ár,“ segir Kári Garðarsson.

Einar Andri tekur undir orð hans: „Var einhver ástæða til bjartsýni? Við töpum í undirbúningnum fyrir Portúgal og svo vinnum við seinni leikinn gegn Þýskalandi en það er oft þannig að liðið sem vinnur fyrri leikinn kemur rólegar inn í þann síðari. Við vorum að tala okkur upp því allir voru heilir og æfingarnar áttu að ganga vel. Kannski vorum við samt ekki að horfa nógu raunsætt á þetta.“

Stóra vandamálið, segir Kári, hafi einfaldlega verið að tapa leiknum gegn Hvíta-Rússlandi. „Það var bara blaut tuska í andlitið fyrir alla sem þekkja til. Það átti að vera auðveldur leikur eða allavega sigur. Eftir hann vorum við komnir með bakið upp við vegg fyrir leik gegn liði sem er gríðarlega öflugt. Þar vorum við svo með allt niður um okkur. Það voru of margir að spila langt undir pari.“

Þörf á naflaskoðun

En hver eru næstu skref? „Við þurfum að finna út úr þessari vörn,“ svarar Einar Andri um hæl. „Ég hef engar áhyggjur af sóknarleiknum. Það þarf að vera endurnýjun í liðinu en alls ekki hreinsa út tíu leikmenn og inn með aðra tíu. Það er það versta sem við gætum gert. Við þurfum að finna leikmenn sem geta spilað vörn og sókn og fá betra jafnvægi í liðið.“

Gunnar Andrésson vill að handboltahreyfingin líti öll inn á við: „Við komumst ekkert hjá kynslóðaskiptum. Kannski þurfum við bara að taka eitt skref aftur á bak til að taka tvö áfram. Við þurfum að fara í naflaskoðun og sjá hvar við öll getum bætt okkur til dæmis í þjálfun og annað. Það er fullt af efnilegum strákum að koma upp þannig að saman þurfum við öll að vinna í sömu átt.“

Aron Kristjánsson gæti látið af störfum.vísir/valli
Sérfræðingarnir þrír voru allir spurðir hvort Aron Kristjánsson ætti að vera áfram með liðið.

Þarf traust frá  leikmönnum


„Ég held að Aron sé alveg nógu góður þjálfari til að stýra íslenska liðinu áfram ef hann er til í það,“ segir Einar Andri, aðspurður um framtíð Arons Kristjánssonar.

„Ef hann hefur traust frá leikmönnum og HSÍ sé ég enga ástæðu til þess að breyta til. Ég held að allir sem koma að liðinu þurfi að kafa djúpt og finna ástæðuna fyrir þessum árangri. Það er þörf á naflaskoðun hjá öllum sem koma að handboltanum á hæsta stigi á íslandi,“ segir Einar Andri Einarsson.



Gæti tekið tíma


„Aron er frábær þjálfari og gæti gert gagn með þetta lið, en ég held að það eigi bara eftir að koma í ljós hvað verður,“ segir Gunnar varðandi framtíð Arons Kristjánssonar með landsliðið.

„Þetta gæti alveg verið tímapunktur til að fé ferskt blóð inn í þetta. Við komumst að því þegar tíminn aðeins líður og menn átta sig á hvað fór úrskeiðis. Það er vafalítið ýmislegt í þessu sem við vitum ekki,“ segir Gunnar sem kallar eftir þolinmæði.

„Það þarf að stýra þessu skipi á beinu brautina en það gæti tekið tíma þannig að við verðum að vera þolinmóð.“

Kominn tími á ferskt blóð

„Já, ég held það hreinlega,“ segir Kári Garðarsson aðspurður hvort það sé kominn tími á að Aron Kristjánsson láti af störfum.

„Hann er frábær þjálfari og hefur náð góðum árangri með íslenska liðið sem og þau félagslið sem hann hefur stýrt bæði hér heima og úti. En það er tími núna til að fá ferskt blóð inn í þetta,“ segir Kári.

„Það er kominn tími á breytingar en ég segi það með fullri virðingu fyrir Aroni Kristjánssyni og öllu sem hann hefur gert.“


Tengdar fréttir

Björgvin Páll: Sorry

Skilaboð landsliðsmarkvarðarins eftir tapið gegn Króatíu í gær voru einföld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×