Enski boltinn

United staðfestir kaupin á Martial

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
Manchester United hefur gengið frá kaupum á Anthony Martial frá Monaco á fjögurra ára samningi, en hann er einungis nítján ára gamall.

Martial er fæddur 1995 og er Frakki sem ólst upp hjá Lyon, en gekk í raðir Mónakó sumarið 2013. Þar hefur hann spilað 49 leiki og skorað ellefu mörk.

Sjá einnig: Í beinni: Lokadagur félagaskipta á Englandi | Glugginn lokar kl. 17.00

Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Frakklands, en verðmiðinn er í kringum 36 milljónir punda sem gæti hækkað eftir því hversu vel Martial spilar.

Það er ljóst að það verður mikil pressa á þessum unga dreng, enda miklum fjármunum eytt í að klófesta hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×