Innlent

Ungur Seltirningur tekur formannsslaginn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Guðmundur Ari Sigurjónsson
Guðmundur Ari Sigurjónsson
Guðmundur Ari Sigurjónsson, 27 ára Seltirningur, hefur boðið sig fram sem formaður Samfylkingarinnar. Í yfirlýsingu frá honum, þar sem tilkynnt er um framboðið, kemur fram að hann vilji hjálpa flokknum að finna gleði sína á nýjan leik.

Guðmundur er tómstunda- og félagsmálafræðingur og bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi. „Það er í raun og veru alveg ótrúlegt að Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands, sé ekki stærsti flokkurinn hér á landi þar sem mikill meirihluti landsmanna eru jafnaðarmenn og vilja búa í samfélagi þar sem allir hafa jafna möguleika til að ná árangri óháð efnahag og félagslegri stöðu,“ segir Guðmundur Ari.

Að sögn formannsframbjóðandans þarf formaður flokksins ekki aðeins að vera talsmaður stefnunnar heldur að vinna eftir henni að auki. Samfylkingin þurfi ekki formann sem telur sig vita allt best og að hann sé með allar lausnir á vandamálum samfélagsins.

„Það vill oft gleymast að Samfylkingin er stærri en þingflokkur Samfylkingarinnar og að í sveitarstjórnum landsins berjast fulltrúar flokksins á hverjum degi fyrir baráttumálum jafnaðarmanna,“ segir Guðmundur Ari og bætir við að hann vilji sem formaður vinna í góðu samstarfi við sveitarstjórnarmenn Samfylkingarinnar á landsvísu.

Guðmundur Ari er giftur Nönnu Árnadóttur íþróttafræðingi og saman eiga þau tvo syni, Árna Berg og Kjartan Kára. Nánar er hægt að kynna sér málefni Guðmundar á heimasíðu hans allirflottir.is.


Tengdar fréttir

Vill endurnýja forystu Samfylkingarinnar

Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður, býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar í komandi formannskjöri. Hann vill fara aftur á þing og hefur fulla trú á því að hægt verði að rétta fylgi Samfylkingarinnar við.

Helgi Hjörvar boðar breytingar og ætlar sjálfur í formanninn

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Helgi Hjörvar, segir flokk sem hefur misst tvo þriðju fylgis síns þurfa að vera opinn fyrir öllum hugmyndum. Hann ætlar að bjóða sig fram sem formann á landsfundi. Hann ræðir pólítíkina, augnsjúkdóminn og ballettferilinn.

Árni Páll: Mistökin allt ábendingar frá flokksmönnum

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir að bréf hans til flokksmanna þar sem tíundaðar eru mögulegar ástæður fylgistaps flokksins sé afrakstur ábendinga sem honum hafi borist frá almennum flokksmönnum bæði bréflega og á fundum vítt og breitt um landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×