Innlent

Umsóknir hælisleitenda á Íslandi afgreiddar á 90 dögum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
visir/gva
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, og Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, undirrituðu á hádegi samning um þjónustu við hælisleitendur. Markmiðið með honum er að hraða málsmeðferð vegna hælisumsókna, bæta verklag og tryggja sem besta nýtingu fjármangs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu.

Téðum samningi er ætlað að tryggja raunverulegar breytingar á verklagi í innflytjendamálum, tryggja hlutlausa og óháða réttargæslu fyrir alla hælisleitendur þannig að jafnræðis sé gætt. Áhersla er lögð á að stytta málsmeðferð en afgreiðsla umsókna hælisleitenda hefur tekið allt upp í tvö til þrjú ár á umliðnum árum. Stefnt er að því að þessi tími verði ekki lengri en 90 dagar að meðaltali frá og með 25. ágúst 2014.

Að sögn Hönnu Birnu hefur lengi verið unnið að þessum breytingum og að með samningnum verði Rauði krossinn helsti samstarfsaðili ráðuneytisins á þessu sviði. „Aðkoma Rauða krossins að þessum verkefnum hefur mikla þýðingu, ekki aðeins vegna þeirrar þekkingar og reynslu sem samtökin hafa af málefnum tengdum innflytjendum, heldur einnig vegna þeirrar gilda og fagmennsku sem einkenna störf samtakanna,“ sagði hún. „Hér er um að ræða mikil tímamót í þessum málaflokki og við getum í framhaldinu tryggt hælisleitendum betri og skilvirkari þjónustu samhliða betri nýtingu fjármagns.“

Rauði krossinn mun reglulega meta aðbúnað hælisleitenda, sinna heimsóknarþjónustu og félagsstarfi samkvæmt samningnum. Einnig mun hreyfingin sjá tímabundið um að gæta hagsmuna hælisleitenda við umsókn þeirra um hæli. Í því starfi felst meðal annars að sjá um leiðbeiningar og upplýsingagjöf í móttökumiðstöð, viðvera í viðtali og þátttaka í að greina sérstaklega viðkvæma hælisleitendur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×