Innlent

Umsögn um endurupptöku skilað í dag

Samúel Karl Ólason skrifar
Endurupptökubeiðnirnar byggja að mestu á skýrslu starfshóps Ögmundar Jónassonar sem komst að þeirri niðurstöðu að frumburðir sakborninga hafi ýmist verið falskir eða óáreiðanlegir.
Endurupptökubeiðnirnar byggja að mestu á skýrslu starfshóps Ögmundar Jónassonar sem komst að þeirri niðurstöðu að frumburðir sakborninga hafi ýmist verið falskir eða óáreiðanlegir. Vísir/GVA
Davíð Þór Björgvinnsson, settur ríkissaksóknari í Guðmundar og Geirfinnsmálinu, mun skila í dag umsögn sinni um endurupptökubeiðni málsins. Umsögninni mun hann skila til endurupptökunefndar. Umsögn Davíðs kemur að tveimur endurupptökubeiðnum frá Erlu Bolladóttur og Guðjóni Skarphéðinssyni.

Skilafrestur umsagnarinnar hefur verið framlengdur þrisvar sinnum og rennur út í dag.

Sjá einnig: Erla Bolladóttir fer formlega fram á endurupptöku

Sérfræðingahópur sem fór yfir gögn í málinu skilaði skýrslu í mars 2013 til þáverandi innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar. Hópurinn komst að því að veigamikil rök væru fyrir því að taka málið upp aftur og fóru tveir af sakborningunum, þau Guðjón Skarphéðinsson og Erla Bolladóttir, formlega fram á endurupptöku um sumarið.

Davíð Þór vill ekki tjá sig um umsögnina og segir það vera verk upptökunefndarinnar. Fyrst var fjallað um málið á vef RÚV í dag.

Fimm beiðnir borist

Alls hafa fimm endurupptökubeiðnir borist. Nú síðast frá erfingjum þeirra Tryggva Rúnars Leifssonar og Sævars Ciesielski. Beiðnirnar byggja að mestu á skýrslu starfshóps Ögmundar Jónassonar sem komst að þeirri niðurstöðu að frumburðir sakborninga hafi ýmist verið falskir eða óáreiðanlegir. Því standi veigamikil rök til þess að málið verði tekið upp aftur.

Þá samþykkti Alþingi í fyrra lög sem gera aðstandendum látinna dómþola kleift að biðja um endurupptöku mála þeirra.

Erla Bolladóttir var dæmd í þriggja ára fangelsi. Guðjón Skarphéðinsson var dæmdur í tíu ára fangelsi. Tryggvi Rúnar Leifsson var dæmdur í þrettán ára fangelsi og Sævar Ciecielski var dæmdur í sautján ára fangelsi. Einnig barst endurupptökubeiðni frá Alberti Klahn Skaftasyni. Hann var dæmdur í ársfangelsi fyrir að tálma rannsókn málsins á sínum tíma.

Björn Bergsson, formaður upptökunefndarinnar, segir að umsögnin verði svo send til Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns þeirra Erlu og Guðjóns. Hann muni gera athugasemdir um umsögn Davíðs. Án þess að hafa séð umfang umsagnirinnar gerir Björn ráð fyrir því að Ragnari verði veittur frestur til ágústloka.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×