Innlent

Ummæli Björns Braga rata í austurríska og þýska miðla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björn Bragi líkti íslenska landsliðinu við nasista í gær.
Björn Bragi líkti íslenska landsliðinu við nasista í gær. visir/stefán
Ummæli Björns Braga Arnarssonar í tengslum við leik Íslands og Austurríkis hafa ratað í þýska og austurríska miðla en hann líkti íslenska landsliðinu við nasista sem væru að slátra því austurríska.

„Íslenska landsliðið er eins og þýskir nasistar árið 1939 - að slátra Austurríkismönnum,“ sagði Björn Bragi Arnarsson um íslenska karlaliðið í hálfleik í leik Íslands og Austurríkis en íslenska liðið vann leikinn örugglega 33-27. Björn Bragi er umsjónarmaður EM stofunnar á RÚV, en í þættinum er fjallað um Evrópumótið í handknattleik sem fram fer þessa dagana í Danmörku.

Ummælin hafa vakið mikla reiði á Íslandi en sjónvarpsmaðurinn baðst strax afsökunar á orðum sínum eftir leikinn. Björn baðst einnig afsökunar í samtali við blaðamann Vísis.

Fjallað er um málið á þýsku vefsíðunni Sport1.de í dag en þar er greint frá ummælum Björns Braga. Fram kemur í frétt þýska miðilsins að sjónvarpsmaðurinn hafi nú þegar beðist afsökunar en austurríska handknattleikssambandið er aftur á móti með málið í skoðun og áskilur sér rétt til þess að grípa til lagalegra úrræða.

Einnig er fjallað um málið á austurrísku síðunni laola1.at en þar kemur fram að austurríska handknattleikssambandið líti málið alvarlegum augum.

„Við erum ennþá að bíða eftir réttri þýðingu og staðfestingu á því að hann hafi látið þessi orð flakka en ef það reynist rétt munum við leita réttar okkar,“ segir Gerhard Hofbauer, forseti austurríska handknattleikssambandsins.

Patrekur Jóhannesson, þjálfari austurríska landsliðsins, er einnig allt annað en sáttur með ummæli Björns.

„Það er ótrúlegt að einhver láti svona út úr sér. Sem Íslendingur skammast ég mín í raun fyrir svona ummæli og er það vægt til orða tekið," sagði Patrekur í samtali við síðuna.


Tengdar fréttir

RÚV harmar ummæli Björns Braga

Kristín H. Hálfdánardóttir segir íþróttadeild RÚV harma ummæli Björns Braga um íslenska landsliðið.

Líkti landsliðinu við nasista

"Íslenska landsliðið er eins og þýskir nasistar árið 1939 - að slátra Austurríkismönnum," sagði Björn Bragi Arnarsson um íslenska karlaliðið í handbolta rétt í þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×