Handbolti

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 25-35 | FH valtaði yfir Stjörnuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Gústafsson, leikmaður Stjörnunnar.
Ólafur Gústafsson, leikmaður Stjörnunnar. vísir/anton
FH vann auðveldan sigur á Stjörnunni, 35-25, í Olís-deild karla í handknattleik í TM-höllinni í Garðabæ í kvöld.

Gestirnir í FH byrjuðu leikinn töluvert betur og var sóknarleikur Stjörnunnar vægast sagt ryðgaður til að byrja með. Þegar rúmlega tíu mínútur voru liðnar af leiknum hafði FH þriggja marka forustu, 8-5, og Ólafur Gústafsson eini leikmaður Stjörnunnar með lífsmarki. Sóknarleikur heimamanna gekk oft illa en aðal hausverkurinn var döpur vörn og markvarsla. Eftir 30 mínútna leik var staðan 17-12 fyrir FH og ekki til útflutninga að fá á sig 17 mörk í hálfleik.

Ólafur Gústafsson var atkvæðamestur í liði Stjörnunnar með fimm mörk eftir fyrri hálfleikinn og Jóhann Birgir Ingvarsson var einnig með fimm mörk fyrir FH rétt eins og Óðinn Þór Ríkharðsson. Fimm mörkum munaði á liðunum í hálfleiknum.

Í upphafi síðari hálfleiksins skoraði FH fyrstu fjögur mörk leiksins og breyttu stöðunni  allt í einu í 21-12 og gerðu í raun útum leikinn á þeim kafla.  Það leið síðan ekki langur tíma þar til að munurinn var orðinn tíu mörk, 24-14.

Stjörnumenn áttu einfaldlega aldrei séns í þessum leik og er skemmst frá því að segja að FH vann auðveldan sigur, 35-25.

FH er því komið upp í annað sæti deildarinnar með 24 stig, einu stigi á eftir Aftureldingu. Stjarnan er enn í sjöunda með 15 stig. Jóhann Birgir Ingvarsson og Óðinn Þór Ríkharðsson skoruðu báðir 10 mörk fyrir FH í kvöld.

Halldór: Bjóst ekki við svona stórum sigri„Ég bjóst nú ekki við svona stórum sigri fyrirfram, sérstaklega þar sem Stjarnan hefur verið að spila vel í síðustu deildarleikjum,“ segir Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, eftir leikinn.

„Við vorum bara mjög þéttir og mjög góðir varnarlega í kvöld. Það skilaði sér í mörgum góðum hraðaupphlaupum og svo vorum við agaðir sóknarlega. Ég er bara mjög sáttur með þennan tíu marka sigur.“ FH gerði í raun útum þennan leik í upphafi síðari hálfleiksins.

„Sú byrjun var frábær hjá okkur en það er samt svo stutt í þessu. Smá óöryggi og þá eru þeir komnir aftur inn í leikinn.“ Halldór segir að hópurinn hjá FH sé mjög breiður og það hafi sýnt sig í kvöld.

„Við teljum okkur vera með fína breidd og sumir vilja alltaf bara tala um sömu leikmennina en þetta er heilt lið sem vinnur saman.“

Einar: Þetta var vonandi bara slys sem kemur ekki aftur fyrir„Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja, en ég geld að þetta byrji fyrst og fremst í hausnum á okkur. Hugafarið hjá okkur var ekki gott,“ segir Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn. 

„Það er eitthvað sem við þurfum að skoða vel núna í pásunni og laga andlega þáttinn. Þá fyrst getum við byrjað að vinna í þáttum eins og vörn, sókn og markvörslu.“

Hann segir að nánast allar tímasetningar hafi verið rangar í varnarfærslu liðsins í kvöld.

„Við erum hægir á fótum og töpum stöðum maður á mann í nánast hvert einasta skipti. Þetta er mjög óvanalegt hvað okkur varðar. Fyrir þennan leik vorum við búnir að fá á okkur fæst mörk í deildinni.“

Einar vonar að leikurinn í kvöld hafi bara verið slys og komi ekki fyrir aftur.

„Við þurfum núna að setjast niður og vinna í þessum saman, það þýðir ekkert að vera með nein læti fyrir þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×