Handbolti

Umfjöllun: FH-ingar unnu öruggan sigur í Kaplakrika

Kristinn Páll Teitsson í Kaplakrika skrifar
Daníel Andrésson átti magnaðan leik í marki Akureyrar og fagnaði vel í leikslok. Mynd/Anton
Daníel Andrésson átti magnaðan leik í marki Akureyrar og fagnaði vel í leikslok. Mynd/Anton
FH tryggði sér sæti í úrslitum N1 deildarinnar í kvöld með 32-21 sigri á Fram í Kaplakrika í kvöld. FH-ingar mæta því liði Akureyrar í úrslitum N1 deildarinnar á miðvikudaginn á meðan Fram er komið í sumarfrí.

FH-ingar unnu fyrsta leikinn örugglega í Kaplakrika 29 - 22 en Framarar svöruðu með 27-26 sigri í Safamýrinni sl. laugardag og var því mikið undir.

Framarar byrjuðu leikinn betur. Magnús Erlendsson, markmaður Fram, var í miklu stuði og náðu þeir fljótlega 5-2 forskoti. Þá kom góður leikkafli hjá Hafnarfjarðamönnum og náðu þeir tveggja marka forskoti sem þeir héldu út hálfleikinn.

Minnstu mátti muna að allt myndi sjóða upp úr á rétt fyrir hálfleik þegar Magnús Stefánsson, leikmaður Fram, virtist slá til Ara Magnússonar, leikmanns FH. Dómarapar leiksins leysti þó vel úr því og sendi Magnús í tveggja mínútna kælingu og voru því Framarar tveimur mönnum færri eftir að Andri Berg Haraldsson hafði fengið brottvísun rétt áður.

FH-ingar nýttu sér þann mun afar vel og bættu sífellt í. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður hafði FH skorað 10 gegn 3 mörkum Fram og var komið með hentugt 9 marka forskot. Framarar náðu aldrei að ógna því og lauk leiknum því með öruggum sigri FH-inga

Það er því ljóst að FH leikur til úrslita gegn Akureyri og er fyrsti leikurinn á laugardaginn næsta á Akureyri.

FH – Fram 32 - 21 (14 - 12)

Mörk FH (skot):Baldvin Þorsteinsson 7(10), Ólafur Andrés Guðmundsson 7(12) Ásbjörn Friðriksson 6/4 (10/4), Örn Ingi Bjarkason 3(8), Ari Magnús Þorgeirsson 3(5), Ólafur Gústafsson 3 (7), Atli Rúnar Steinþórsson 3 (3)

Varin skot: Pálmar Pétursson 1 (6, 16%), Daníel Freyr Andrésson 14 (29, 48%)

Hraðaupphlaupsmörk: 4 ( Baldvin Þorsteinsson)

Fiskuð víti: 3 ( Sigurgeir Árni Ægisson 2, Benedikt Reynir Kristinsson)

Utan vallar: 6 mínútur.

Mörk Fram (skot):Jóhann Gunnar Einarsson 5(9), Andri Berg Haraldsson 5(9), Haraldur Þorvarðarson 4(6), Einar Rafn Eiðsson 3/2(4/2), Magnús Stefánsson 1(4), Stefán Baldvin Stefánsson 1(3), Halldór Jóhann Sigfússon 1 (2), Matthías Daðason 1 (1)

Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 17 (39, 43%)

Hraðaupphlaupsmörk: 0

Fiskuð víti: 2 (Jóhann Gunnar Einarsson, Haraldur Þorvarðarsson)

Utan vallar: 14 mínútur








Fleiri fréttir

Sjá meira


×