SUNNUDAGUR 19. MAÍ NÝJAST 06:00

Skrautlegt mark Sabrínu

SPORT

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36

Vísir Handbolti 16. janúar 2013 10:44
  • MYNDIR / VILHELM GUNNARSSON
Sigurður Elvar Þórólfsson í Sevilla skrifar:
Danir tóku íslenska landsliðið í handbolta í kennslustund í kvöld á heimsmeistaramótinu á Spáni. Danir léku varnarmenn Íslands upp úr skónum og 36-28 sigur þeirra var öruggur. Með sigrinum tryggðu Danir sér efsta sætið í riðlinum – en Íslendingar þurfa á sigri að halda gegn Katar á föstudaginn í lokaumferðinni, og stóla á að Danir vinni Makedóníu, til þess að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.

Það var ljóst þegar líða fór á leikinn að íslensku leikmennirnir höfðu notað allt sem þeir áttu til gegn Makedóíu í gærkvöld. Orkan var ekki til staðar í varnarleiknum og þreytumerki sáust hér og þar. Danir hafa fram til þessa á mótinu getað hvílt lykilmenn gegn Síle og Katar – og Mikkel Hansen hafði aðeins leikið gegn Rússum þegar kom að leiknum gegn Íslendingum í gær. Lúxulíf hjá einum besta leikmanni heims, sem skoraði alls sjö mörk og var öflugur.

Það má segja að Danir hafi slitið sig frá Íslendingum undir lok fyrri hálfleiks þegar staðan var 13-12 fyrir Dani. Þeir skoruðu þrjú mörk gegn einu á síðustu fimm mínútum fyrri hálfleiks – staðan var 16-13 fyrir Dani í hálfleik.

Ulrik Wilbek þjálfari Dana lagði gríðarlega áherslu hraðar sóknir ef Íslendingar skoruðu.

Og þar fór Henrik Möllgaard fremstur í flokki. Hann dúndraði inn hverju markinu á fætur öðru í síðari hálfleik – og lagði sitt á vogarskálina. Möllgaard stóð vaktina í vörninni og hann er ekki öflugasti varnarmaður liðsins en styrkleikar hans nýttust gríðarlega vel gegn Íslendingum í kvöld.

Hans Lindberg var einnig gríðarlega öflugur og skoraði alls 7 mörk úr 9 skotum. Lindberg á íslenska foreldra en hann sýndi „löndum" sínum enga miskun í kvöld og var besti maður danska liðsins. Hann tók Aron Pálmarsson föstum tökum í vörninni í síðari hálfleik og Aron átti ekki greiða leið að markinu. Hann skoraði aðeins 2 mörk úr 8 tilraunum. Aron lék félaga sína vel uppi og lagði upp fjölmörg mörk sem Kári Kristjáns Kristjánsson skoraði af línunni. Kári var markahæstur með 8 mörk úr 9 tilraunum.

Ólafur Gústafsson og Ernir Arnarson lögðu sitt af mörkum á meðan þeir voru inni á vellinum. Ólafur átti góð langskot og skoraði 2 mörk úr 4 skotum. Ernir skoraði eitt mark á þeim stutta tíma sem hann var inni á vellinum. Arnór Þór Gunnarsson lék í hægra horninu og skoraði úr eina skotinu sem hann tók í leiknum.

Varnarleikur íslenska liðsins var dapur. Sóknarleikurinn var það sem lýsti upp myrkrið. Snorri Steinn Guðjónsson lék vel í síðari hálfleik og það er jákvætt, hann skoraði alls 5 mörk. Kári Kristján Kristjánsson var öflugur í sóknarleiknum og var markahæsti leikmaður liðsins með alls átta mörk úr níu tilraunum. – sem er afar jákvætt fyrir leikinn gegn Katar.


Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36
Aron: Áttum erfitt uppdráttar

Aron Kristjánsson játaði fúslega að Danir hefðu verið einfaldlega betri í leiknum gegn Íslandi í kvöld.

„Þeir voru að spila frábæran handbolta," sagði Aron í samtali við Arnar Björnsson í kvöld.

„Við vorum að standa langt frá þeim í varnarleiknum. Við spiluðum ekki hjálparvörn og þeir náðu að slíta okkur í sundur."

„Það var svo sama hvað þeir gerðu - allt gekk upp. Hvort sem það var skot utan af velli, gegnumbrot, línuspil og svo framvegis. Við áttum mjög erfitt uppdráttar í vörn."

„Það sem er hins vegar jákvætt er að við vorum að spila okkar besta sóknarleik í keppninni. Við fengum menn í gang sem var mjög gott."

„Nú þurfum við að fá bæði sókn og vörn til að smella saman."


Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36
Wilbek: Munum gera okkar besta gegn Makedóníu

Ulrik Wilbek, þjálfari danska landsliðsins, var sigri hrósandi eftir leik Íslands og Danmerkur á HM í handbolta í kvöld.

Danir hafa unnið alla leiki sína í B-riðli og eru nú öruggir með efsta sætið.

Ísland þarf þó að treysta á að Danir vinni Makedóníu á föstudaginn. Sigri Makedónía mun Ísland mögulega lenda í fjórða sæti riðilsins.

„Við munum gera okkar besta gegn Makedóníu. Ég lofa því," sagði Wilbek á blaðamannafundi eftir leik.

Ísland mætir Katar á föstudaginn.


Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36
Guðjón Valur: Þeir voru einfaldlega betri

Guðjón Valur Sigurðsson segir að framundan sé ekkert nema bikarúrslitaleikir fyrir íslenska landsliðið á HM í handbolta.

Ísland tapaði fyrir Danmörku í Sevilla í kvöld með átta marka mun. „Það er þó ólíkt að tapa fyrir Rússlandi, þegar við vorum mjög lélegar, og í dag þegar við vorum að spila við frábært lið," sagði Guðjón Valur við Arnar Björnsson eftir leikinn í kvöld.

„Við áttum í stórkostlegum vandræðum gegn þeim. Við náðum varla að klukka þá og þeir fengu allt of mikið af fríum skotum."

„Það er auðvitað hundfúlt að tapa. En nú erum við í þeirri stöðu að ef við vinnum Katar tekur við bikarkeppni hjá okkur. Við þurfum því að grafa þennan leik eins djúpt og við getum og gleyma honum."

Ísland þarf að stóla á danskan sigur gegn Makedóníu á föstudag til að forðast það að mæta Frökkum í 16-liða úrslitum keppninnar.

„Nú förum við upp á hótel og reynum að græja það að Danirnir taki á þeim. En að öllu gríni slepptu þá er stórhættulegt að slaka á í svona mótum. Það þarf að halda dampi og við vonum að þeir geri það."

Guðjón Valur segir að íslensku leikmennirnir hafi verið teknir í kennslustund í upphafi síðari hálfleiks í dag.

„Þeir keyrðu í bakið á okkur og skoruðu grimmt, án þess að við náðum að skipta inn á varnarmönnunum okkar. Þeir voru líka oft að skora af löngum færum."

„Það þarf að horfast í augu við raunveruleikann og segja að Danir voru einfaldlega betri í dag. Danir eru Evrópumeistarar en ég vil samt meina að við getum unnið þetta lið á góðum degi."

„En til þess þurfa fleiri leikmenn að hitta á góðan dag sem gerðist því miður ekki. Við fengum rassskellingu í dag og heilmikið sem hægt er að læra af því."

„Nú þurfum við að taka það jákvæða með okkur úr þessum leik, taka Katar og gera svo allt vitlaust í bikarkeppninni."


Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36
Snorri: Fengum rassskellingu

Snorri Steinn Guðjónsson segir að það hafi verið erfitt að elta danska liðið í kvöld. Ísland tapaði með átta marka mun, 36-28.

„Þeir sýndu í dag að þeir eru með mjög gott lið. Við fengum rassskellingu," sagði Snorri Steinn við Arnar Björnsson eftir leikinn í dag.

„Við vorum á eftir þeim í öllum aðgerðum og þeir stungu af í seinni hálfleik. Við réðum ekkert við þá í vörninni og þetta varð að eltingarleik sem var mjög erfiður fyrir okkur."

„Danir voru einfaldlega númer of stórir í dag. Þeir byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur en við. Við reyndum að bregðast við með breyttum varnarleik en það gekk ekki upp að þessu sinni."

„Mótið er samt ekki búið. Nú þurfum við að klára Katar. Við græðum á því að mótafyrirkomulagið er breytt," sagði Snorri.


Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36
Kári Kristján: Ekkert kjaftæði gegn Katar

Kári Kristján Kristjánsson segir það eðlilega kröfu að íslenska landsliðið vinni Katar í lokaumferð riðlakeppninnar á HM í handbolta.

Ísland er í fjórða sæti B-riðils eftir tap gegn Dönum í dag. Það kemur því ekkert annað til greina hjá strákunum en sigur gegn Katar.

„Þetta var erfitt í dag. Við áttum á brattann að sækja allan leikinn, eins og tölurnar gefa til kynna," sagði Kári í samtali við Arnar Björnsson eftir leikinn í kvöld.

„Þeir skoruðu mökið og það er erfitt að ætla skora 36 mörk gegn Danmröku."

„Sóknarleikurinn var þannig séð fínn. Við skoruðum 28 mörk og þá fóru þrjú víti í súginn, sem og einhver hraðaupphlaup."

Hann lofar óhræddur sigri gegn Katar á föstudag. „Það er virkilega eðlilegt að lofa sigri gegn Katar. Við ætlum að vinna þann leik og ekkert helvítis kjaftæði."

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Handbolti 18. maí 2013 19:18

Hannes Jón tryggði Eisenach stig

Hannes Jón Jónsson skoraði jöfnunarmark Eisenach sem gerði 29-29 jafntefli við Bad Schwartau í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Meira
Handbolti 18. maí 2013 18:23

Rhein-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum

Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag. Meira
Handbolti 18. maí 2013 16:06

Nantes komið í úrslit | Gunnar Steinn skoraði tvö

Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes. Meira
Handbolti 17. maí 2013 20:32

Naumt tap í fyrri bronsleiknum

Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin... Meira
Handbolti 17. maí 2013 19:24

Arnór með fínan leik í flottum útisigri

Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26. Meira
Handbolti 17. maí 2013 16:21

Ólafur kvaddur í Laugardalshöllinni

Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni. Meira
Handbolti 17. maí 2013 08:00

Framtíð mín er á Íslandi

Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands. Meira
Handbolti 17. maí 2013 07:30

Dröfn í ÍBV

ÍBV hefur fundið arftaka Florentinu Stanciu því Dröfn Haraldsdóttir, leikmaður FH, samdi við liðið í fyrradag. Meira
Handbolti 16. maí 2013 12:15

Ólafur hafnaði danska landsliðinu

Ólafur Stefánsson staðfesti við danska fjölmiðla í dag að honum hafi boðist að taka við þjálfun danska karlalandsliðsins í handbolta. Meira
Handbolti 16. maí 2013 08:00

Kóngurinn í Kiel

Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st... Meira
Handbolti 15. maí 2013 19:45

Aron klæddi hundinn sinn upp í tilefni titilsins

Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ... Meira
Handbolti 15. maí 2013 19:00

Marklínutækni í handboltanum

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hyggst nota svokallaða marklínutækni á leikjum í úrslitahelgi EHF-bikarsins um helgina. Meira
Handbolti 15. maí 2013 16:45

Grosswallstadt fékk ekki keppnisleyfi

Þýska úrvalsdeildarfélagið Grosswallstadt, lið Sverre Jakobssonar og Rúnars Kárasonar, fékk ekki úthlutað keppnisleyfi fyrir næsta tímabil. Meira
Handbolti 15. maí 2013 12:15

Aron hlaut yfirburðakosningu

Aron Pálmarsson var valinn leikmaður aprílmánaðar á heimasíðu þýsku meistaranna í THW Kiel. Meira
Handbolti 15. maí 2013 08:15

Íslenskir liðsfélagar þýskir meistarar í fyrsta sinn í 35 ár

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen,... Meira
Handbolti 14. maí 2013 22:45

Alfreð búinn að fara illa með Guðmund í vetur

Alfreð Gíslason gerði Kiel að þýskum meisturum í handbolta í fjórða sinn á fimm árum í kvöld þegar liðið vann sex marka sigur á Rhein-Neckar Löwen í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Meira
Handbolti 14. maí 2013 22:37

Alfreð lenti í bjórsturtu í miðju sjónvarpsviðtali

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér þýska meistaratitilinn annað árið í röð í kvöld með því að vinna öruggan og sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen. Alfreð lenti í bjórstur... Meira
Handbolti 14. maí 2013 19:41

Alfreð, Aron og Guðjón Valur þýskir meistarar með Kiel

Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fim... Meira
Handbolti 14. maí 2013 18:44

Refirnir hans Dags upp í þriðja sætið

Füchse Berlin komst upp í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir þriggja marka heimasigur á SC Magdeburg í kvöld, 29-26. Füchse Berlin hefur einu stigi meira en Flensburg-Handewitt sem á l... Meira
Handbolti 14. maí 2013 14:00

Er með nagandi samviskubit

Handboltaparið Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur náð að spila bæði með sterkum liðum í Danmörku og Þýskalandi undanfarin ár. Nú eru þau í Danmörku þar sem Þórey Rósa varð Evrópume... Meira
Handbolti 14. maí 2013 13:45

Fögnuðum í sautján klukkutíma rútuferð

Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir urðu um helgina Evrópumeistarar í handbolta kvenna eftir sigur á franska liðinu Metz í EHF-bikarkeppninni. Liðið getur einnig orðið danskur meistari í næstu ... Meira
Handbolti 14. maí 2013 12:45

Titillinn í húfi þegar Alfreð og Guðmundur mætast

Kiel getur orðið Þýskalandsmeistari í handbolta í átjánda skipti takist liðinu að leggja Rhein-Neckar Löwen að velli á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Meira
Handbolti 14. maí 2013 11:26

Stefán fékk leyfi hjá dótturinni og verður áfram

Stefán Arnarsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við Val og mun því áfram stýra liðinu í N1-deild kvenna. Hann ætlaði að hætta eftir nýliðið tímabil. Meira
Handbolti 13. maí 2013 15:15

Florentina á leið frá ÍBV

Allar líkur eru á því að Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, muni yfirgefa herbúðir félagsins nú í sumar. Meira
Handbolti 13. maí 2013 10:00

Þórir spilar um titilinn

Kielce lenti ekki í vandræðum með andstæðing sinn í undanúrslitum úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Handbolti / Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Danmörk 28-36
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000