Golf

Tvöfaldaði tekjur ferilsins á þrem vikum

Horschel brosir alla leið í bankann í dag.
Horschel brosir alla leið í bankann í dag. vísir/getty
Kylfingurinn Billy Horschel þarf ekki að hafa áhyggjur af peningum í framtíðinni eftir að hafa rakað inn 1,6 milljörðum króna á síðustu þrem vikum.

Horschel tryggði sér sigur á Tour Championship-mótinu í gær og sá sigur tryggði honum einnig sigur í FedEx-bikarnum.

Hann er búinn að rúmlega tvöfalda tekjur sínur á ferlinum á þessum þrem vikum.

Á fyrstu fimm árum ferilsins þénaði Horschel rúmar 700 milljónir króna en þeir peningar blikna við hliðina á uppskeru síðustu þriggja vikna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×