Handbolti

Tvö af stærstu liðum heims vilja fá Dag

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dagur Sigurðsson gæti tekið við Veszprém eða PSG.
Dagur Sigurðsson gæti tekið við Veszprém eða PSG. vísir/getty
Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta, er með tilboð í höndunum frá tveimur stærstu liðum heims; Veszprém í Ungverjalandi og Paris Saint-Germain í Frakklandi, samkvæmt heimildum íþróttadeildar.

Eins og Vísir greindi frá í dag gæti Dagur Sigurðsson hætt með þýska landsliðið næsta sumar en þetta kom fram í þýskum fjölmiðlum í dag. Hann tók við þýska liðinu fyrir tveimur árum og gerði það í ár að Evrópumeisturum auk þess sem hann vann brons á Ólympíuleikunum í Ríó.

Dagur sagði í einkaviðtali við íþróttadeild fyrir helgi að hann væri í viðræðum við þýska sambandið um samningsmál sín. Hann er samningsbundinn til 2020 en klásúla er í samningnum þess efnis að báðir aðilar gátu sest að samningaborðinu í haust.

„Það er í ferli. Hvort ég sjái það fyrir mér að vera þarna næstu 2-3 árin er erfitt að segja. Þegar vel gengur er kroppað í mann úr ýmsum áttum. Það getur alveg farið í allar áttir,“ sagði Dagur við íþróttadeild.

Aron Pálmarsson gæti aftur fengið íslenskan þjálfara.vísir/getty
Xabi eða Noka þurfa að víkja

Það eru engin smálið sem eru að kroppa í Dag og eru búin að gera honum samningstilboð, samkvæmt heimildum íþróttadeildar.

Veszprém hefur í áratugi verið eitt af bestu liðum Evrópu. Það er búið að vinna ungversku úrvalsdeildina tíu ár í röð og 24 sinnum alls. Þá komst það í úrslitaleik Meistaradeildarinnar bæði í ár og í fyrra en tapaði í bæði skiptin.

Aron Pálmarsson, landsliðsmaður Íslands, er á mála hjá Vezprém en hann var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í Meistaradeildinni í maí þrátt fyrir tap liðsins. Þjálfari Veszprém er Spánverjinn Xavi Sabate sem einnig þjálfar ungverska landsliðið.

Paris Saint-Germain varð nýlega stórveldi í evrópskum handbolta þegar sömu fjárfestar og eiga fótboltalið borgarinnar byrjuðu að dæla peningum í það. Það hefur unnið frönsku 1. deildina þrisvar sinnum á síðustu fjórum leiktíðum en á enn eftir að spila til úrslita í Meistaradeildinni.

Þjálfari PSG er hinn 66 ára gamli Noka Serdarusic sem áður þjálfaði Kiel með frábærum árangri í fimmtán ár. Hann tók við Parísarliðinu í fyrra en tókst ekki að vinna Meistaradeildina sem er skýrt markmið liðsins.

Dagur mun alltaf klára heimsmeistaramótið með Þýskalandi í Frakklandi í janúar en eftir það gæti hann tekið við öðru hvoru þessara stórliða næsta sumar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×