Erlent

Tveir reynsluboltar keppa um útnefningu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, Francois Fillon og Alain Juppé, keppa um að verða forsetaefni Lýðveldissinna, stærsta hægri flokks Frakklands.
Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, Francois Fillon og Alain Juppé, keppa um að verða forsetaefni Lýðveldissinna, stærsta hægri flokks Frakklands. Nordicphotos/AFP
Á morgun verður efnt til seinni umferðar forvals Flokks lýðveldissinna í Frakklandi, þar sem tveir fyrrverandi forsætisráðherrar keppa um að verða forsetaefni flokksins.

Þeir Alain Juppé og François Fillon mættust í sjónvarpskappræðum á fimmtudagskvöld, og þótti Fillon hafa staðið sig betur.

Fillon er gallharður frjálshyggjumaður sem lofar að gefa Frökkum raflost verði hann forseti. Raflostið eigi að gagnast fyrirtækjum, sem lengi hafa kvartað undan íþyngjandi regluverki sem hindri sveigjanleika í rekstri.

Juppé þykir frjálslyndari. Hann hefur varað við harkalegum umbótum sem myndu ekki skila tilætluðum efnahagsárangri. Hann hefur einnig verið opnari fyrir fjölmenningu og réttindum minnihlutahópa.

Samkvæmt skoðanakönnunum á Fillon meiri möguleika á sigri. Honum er spáð 65 prósentum atkvæða í forvalinu á morgun.

Hann er einnig talinn eiga meiri möguleika en Juppé í forsetakosningunum, sem haldnar verða 23. apríl næstkomandi.

Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti, náði ekki nógu miklu fylgi í fyrri umferð forvalsins til að komast í seinni umferðina. Það kom nokkuð á óvart, en hann er þar með úr leik.

Sósíalistar, sem nú fara með stjórn landsins, eiga enn eftir að velja sér forsetaefni. Forval þeirra verður í janúar.

François Hollande, núverandi forseti, hefur enn ekki tekið af skarið um hvort hann gefi kost á sér.

Skoðanakannanir spá honum engum yfirburðasigri og reyndar þykir Sósíalistaflokkurinn enn sem komið er varla hafa roð við Lýðveldissinnum, hver svo sem frambjóðandi þeirra verður.

Ekki mælist þjóðernissinninn Marine Le Pen heldur með nógu mikið fylgi til að geta gert sér raunhæfar vonir um forsetaembættið.

Fylgi hennar hefur samt verið að aukast töluvert og óvæntar niðurstöður forsetakosninga í Bandaríkjunum og Brexit-kosninganna í Bretlandi hafa magnað upp óvissuna.

Hún þykir að minnsta kosti eiga góða möguleika á að komast í gegnum fyrri umferð forsetakosninganna, þannig að kjósendur þurfi að velja á milli hennar og frambjóðanda Lýðveldissinna, hvort sem það verður Fillon eða Juppé, í seinni umferðinni. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×