Tvær stúlkur létust í bílslysi við Meðallandsveg Kristján Hjálmarsson skrifar 5. ágúst 2013 11:15 Stúlkurnar tvær voru 15 og 16 ára og voru gestkomandi á Íslandi.
Tvær pólskar stúlkur létust í alvarlegu umferðarslysi á Suðurlandsvegi, skammt austan við Meðallandsveg, um þrjú leytið í gær. Stúlkurnar, sem voru fæddar árið 1997 og 1998, voru úrskurðaðar látnar á vettvangi þegar lífgunartilraunir, sem vegfarendur hófu en var haldið áfram af sjúkraliði, báru ekki árangur. Ökumaður og farþegi í framsæti, karl og kona, voru flutt með þyrlum Landhelgisgæslunnar á slysadeild LSH og eru nú á gjörgæsludeild. Þau eru ekki talin í lífshættu. Fólkið er allt pólskir ríkisborgarar en stúlkurnar sem létust voru gestkomandi á Íslandi. Bifreiðin sem fólkið var í fór út af veginum og fór nokkrar veltur og hafnaði á hvolfi. Stúlkurnar, sem voru farþegar í bílnum, köstuðust út úr honum. Eldur kviknaði í bifreiðinni. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins. Lögreglumenn frá lögreglunni á Hvolsvelli, staðsettir á Kirkjubæjarklaustri, auk lögreglumanns frá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi komu á vettvang ásamt sérfræðingi í bíltæknirannsóknum. Einnig kom á vettvang slökkvilið frá Vík og Kirkjubæjarklaustri sem og sjúkrabílar frá Vík og Kirkjubæjarklaustri. Læknir frá Vík kom á staðinn auk þess sem björgunarsveitir í Skaftárhreppi aðstoðuðu við vinnu á vettvangi og við að loka umferð um Suðurlandsveg á meðan vinnu stóð. Umferð var beint um Meðallandsveg og Hrífunes á meðan lokunin stóð en vegurinn var opnaður um 18:30 Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir en rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með hana í samvinnu við lögregluna á Hvolsvelli. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um tildrög slyssins eða rannsókn þess að sinni.
Mest lesið Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fannst heill á húfi Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sjá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fella niður 64 milljarða sekt Trump Erlent Fleiri fréttir Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sjá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi 83% fallinna almennir borgarar: „Allt sem er að gerast þarna ber einkenni þjóðarmorðs“ Næsti fasi í yfirtöku á Gasaströnd og Njálugleði Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Sjá meira