Íslenski boltinn

Tuttugu mörk skoruð í fimm leikjum | Sjáðu þau öll

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fimm leikir fóru fram í 20. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi, en viðureign Fjölnis og Stjörnunnar var frestað vegna veðurs. Hann fer fram á morgun á Fjölnisvelli klukkan 16.30.

Tuttugu mörk voru skoruð í þessum fimm leikjum eða fjögur mörk að meðaltali í leik. Boðið var upp á sex marka leik í Hafnarfirði þar sem FH vann Fram, 4-2, og fimm mörk litu dagsins ljós í Kópavogi þar sem Blikar dælduðu Evrópuvonir Víkinga með 4-1 sigri.

Valur lagði Þór, 2-0, að Hlíðarenda og hélt Evrópudraum sínum á lífi, Fylkir vann Keflavík, 1-0, og þá var annar sex marka leikur í Vesturbænum þar sem KR og ÍBV gerðu jafntefli, 3-3.

Jonathan Glenn, framherji ÍBV, skoraði mögulega mark sumarsins í Vesturbænum og Árni Vilhjálmsson bauð einnig upp á glæsilegt mark í Kópavoginum.

Öll mörk gærdagsins má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×