Erlent

Trump vill fjölga kjarnaoddum Bandaríkjanna: „Við ætlum að vera atkvæðamestir“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Nordicphotos/AFP
Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur látið í ljós þá fyrirætlan sína að fjölga kjarnaoddum í eigu Bandaríkjanna. Hann segir að Bandaríkin hafi of lengi verið eftirbátur annarra kjarnorkuríkja í þessum málum og vill að þau eigi flest vopn allra ríkja.  Er þetta í fyrsta skipti sem forsetinn tjáir sig um kjarnorkuvopn eftir að hann tók við embættinu. Reuters greinir frá.

Trump segir að hann væri til í að sjá heim án kjarnorkuvopna, en að það valdi honum áhyggjum hve aftarlega á merinni Bandaríkin séu orðin í kjarnorkuvopnaeign.

„Ég er fyrstur til þess að segja það að ég væri til í að sjá heim þar sem enginn á kjarnorkuvopn en við munum aldrei verða eftirbátur annarra ríkja, jafnvel vinaþjóða, í kjarnorkuvopnaeign.“

„Heimur þar sem ekkert ríki á kjarnorkuvopn væri yndislegur en ef ríki eru hvorteðer að fara að eiga kjarnorkuvopn, þá ætlum við að verða atkvæðamesta ríkið.“

Rússar eiga um þessar mundir rúmlega 7300 kjarnaodda, á meðan Bandaríkin eiga rúmlega 6790.

Daryl Kimball, framkvæmdastjóri sjálfstæðra samtaka vopnaeftirlitssinna, segir að ekkert ríki „ geti orðið atkvæðamest,“ þegar kemur að eign kjarnavopna, þar sem tilgangi þeirra er náð fram, með núverandi fjölda.

„Saga kalda stríðsins sýnir okkur að enginn „er atkvæðamestur,“ þegar kemur að kjarnorkuvopnakapphlaupi. Rússar og Bandaríkjamenn eiga töluvert fleiri slík vopn heldur en nauðsynleg eru til þess að koma í veg fyrir að aðrar kjarnorkuvopnaþjóðir ráðist á þá.“

Gangi áætlanir Trump eftir er ljóst að með því er samkomulag Rússa og Bandaríkjamanna, sem gengur undir nafninu „New START“ rofið en það kvað á um að ríkin tvo myndu takmarka kjarnorkuvopnaframleiðslu sína og halda eign í svipuðu hlutfalli fram að 5. febrúar 2018.

Trump hefur áður sagt að samningurinn hafi verið slæmur fyrir Bandaríkin og góður fyrir Rússland. Ekki er ljóst hvort að Trump vilji rifta þeim samningi algjörlega, eða semja við Rússa um nýjan kjarnorkuvopnasamning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×