Erlent

Trump segir Machado viðbjóðslega

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Trump var vakandi langt fram á nótt að gagnrýna Machado á Twitter.
Trump var vakandi langt fram á nótt að gagnrýna Machado á Twitter. Nordicphotos/AFP
Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana í Bandaríkjunum, sagði í gær að fegurðardrottningin Alicia Machado væri viðbjóðsleg. Machado hefur undanfarna daga, í samstarfi við forsetaframboð Demókratans Hillary Clinton, gagnrýnt Trump fyrir að hafa haft um sig niðrandi ummæli í kjölfar sigurs hennar í Miss Universe árið 1996, keppni sem var þá í eigu Trumps.

Vísaði Trump þar til fortíðar Machado og þess er hún sængaði hjá stjórnanda raunveruleikaþáttarins The Farm fyrir framan myndavél. Þá hefur venesúelski dómarinn Maximiliano Fuenmayor einnig sakað Machado um að hafa hótað sér lífláti árið 1998.

Clinton brást við og sagði ummælin til marks um að Trump væri genginn af göflunum 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Clinton hafði betur í átakalitlum kappræðum

Trump stærði sig af því að hafa grætt á efnahagshruninu og sagði það klókindamerki að hafa komið sér undan því að greiða skatta. Enn er óljóst hvort kappræðurnar muni hafa áhrif á fylgistölur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×