Erlent

Trump og Clinton halda sínu en Cruz og Sanders gefa í

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Donald Trump ávarpar stuðningsmenn sína í Louisiana
Donald Trump ávarpar stuðningsmenn sína í Louisiana vísir/epa
Forysta Donald Trump í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum er ekki eins afgerandi og hún var eftir að Ted Cruz sigraði í tveimur af fjórum ríkjum þar sem kosið var í gær.

Cruz sigraði í Kansas og Maine á meðan Trump fór með sigur af hólmi í Louisiana og Kentucky. Flestir kjörmenn fengust í Louisiana, eða alls 47, en sigrar Cruz voru stærri svo fleiri kjörmenn féllu hans megin í forkosningunum í gær.

 

Úrslitin benda þó til þess að hvorugur þeirra nái þeim 1237 kjörmönnum sem þarf til að hljóta útnefningu repúblikana á flokksþinginu í sumar. Fari það svo verður frambjóðandi flokksins endanlega valinn á flokksþinginu en slíkt hefur ekki gerst hjá repúblikönum síðan árið 1976.

Sjá einnig: Allt sem þú þarft að vita um forkosningarnar í Bandaríkjunum

Ted Cruz virðist vera sá eini sem á möguleika á að stöðva Donald Trumpvísir/epa
Donald Trump hvatti Marco Rubio til þess að draga sig út úr forvalinu og sagði að hann hefði átt mjög slæmt kvöld í gær. Þá sagði Cruz að á meðan fleiri væru um hituna gæfi það Trump ákveðið forskot. Rubio hefur aðeins sigrað í einu ríki en Trump hefur nú sigrað í tólf ríkjum og er með 378 kjörmenn. Cruz hefur sigrað í sex ríkjum og er með 295 kjörmenn.

Demókratar héldu einnig forkosningar í gær en kosið var í þremur. Bernie Sanders bar sigur úr býtum í tveimur þeirra, Nebraska og Kansas, en Hillary Clinton vann stórsigur í Louisiana þar sem hún hlaut 70 prósent atkvæða. Clinton er nú með 1104 kjörmenn en Sanders 446.

Alls þarf 2383 kjörmenn til að hljóta útnefningu Demókrataflokksins en Sanders vonar að sigrar hans í gær bendi til að hann eigi enn möguleika í stærri ríkjum á borð við Ohio og Michigan.


Tengdar fréttir

Tugir milljarða til að ná forystu

Dýrkeypt getur verið að komast langt í forsetakosningum í Bandaríkjunum. Clinton og Trump höfðu í lok febrúar varið 17,9 milljörðum króna í sín framboð. Trump varði þó einungis fimmtungi af fjárhæð Clinton. Frambjóðendur sem hætt

Romney segir Trump vera loddara

Fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, Mitt Romney, hefur hvatt flokksbræður sína til að hafna framboði Donalds Trump.

Svona gæti Trump valdið kreppu

Eftir niðurstöðu Ofurþriðjudags stefnir allt í það að Donald Trump verði forsetaefni Repúblíkanaflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×