Erlent

Trump ítrekar viðurkenningu á „Eitt Kína“ við Xi Jinping

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Xi Jinping.
Donald Trump og Xi Jinping. Vísir/EPA
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði Xi Jinping, forseta Kína, að Bandaríkin myndu halda „Eitt Kína“ stefnunni svokölluðu. Trump hefur sagt að hann vilji nota stefnuna til þess að gera samninga við Kína um önnur málefni eins og viðskipti og tolla.

Yfirvöld í Peking brugðust reið við því þegar Trump tók á móti símtali frá forseta Taívan eftir að hann vann kosningarnar í nóvember.

Kínverjar hafa gert tilkall til Taívans allt frá árinu 1949 þegar leiðtogar lýðveldissinna í Kína flúðu þangað undan kommúnistum og stofnuðu þar ríki, sem þeir kölluðu, og kalla raunar enn, Lýðveldið Kína. Afar grunnt hefur verið á því góða á milli ríkjanna allar götur síðan en samskiptin hafa þó batnað allra síðustu ár.

Árið 1972 tóku Bandaríkin upp stefnu sem nefnist „Eitt Kína“. Það var gert eftir fund Richard Nixon og Mao. Sendiráði Bandaríkjanna í Taívan var lokað árið 1979. Bandaríkin hafa þó alla tíð síðan átt í nánum óopinberum samskiptum við yfirvöld í Taipei.

Tump og Jinping ræddu saman í síma í gær. Þar ræddu þeir hin ýmsu málefni og meðal annars samþykkti Trump að virða „Eitt Kína“. Samkvæmt AP fréttaveitunni tók Hvíta húsið fram að Trump hefði samþykkt það að beiðni Jinping.

Mikil óvissa ríkir varðandi samband ríkjanna. Trump hefur sakað Kína um að svindla á Bandaríkjunum í viðskiptum og hefur gagnrýnt hernaðaruppbyggingu þeirra í Suður Kínahafi. Þá hefur hann einnig gagnrýnt Kína fyrir að beita Norður-Kóreu ekki nægjanlegum þrýstingi vegna kjarnorkuvopna- og eldflaugaáætluna þeirra. 


Tengdar fréttir

Kínverjar harðorðir í garð Trump

Kínverjar segja ljóst að eðli stefnunnar um ,,Eitt Kína" sé ekki opin til umræðu eins og Trump hefur áður lagt til.

Trump kærir sig ekki um að kínversk stjórnvöld segi sér fyrir verkum

Donald Trump segir að Bandaríkin þurfi ekki endilega að halda sig við "Eitt Kína“-stefnuna. Trump segist þá ekki vilja láta kínversk stjórnvöld segja sér fyrir verkum en þau sendu frá sér formlega kvörtun í kjölfar símtals Trump við forseta Taívan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×