Erlent

Trump er einn eftir

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Trump sigurviss að loknum forkosningum í Indiana á þriðjudag.
Donald Trump sigurviss að loknum forkosningum í Indiana á þriðjudag. Nordicphotos/AFP
Repúblikanar sitja væntanlega uppi með Donald Trump sem forsetaframbjóðanda sinn í haust, mörgum helstu ráðamönnum flokksins til skelfingar.

Elizabeth Warren, öldunga­deildar­þingmaður fyrir Demókrataflokkinn, segir Trump hafa meira fylgi í Ku Klux Klan samtökunum heldur en í valdakjarna Repúblikanaflokksins.

Hún segir hann hafa náð þessum árangri með því að básúna kynþáttahatur, kvenhatur og útlendingahræðslu.

Fyrirfram þóttu almennt litlar líkur á því að Trump myndi sigra í forkosningum Repúblikanaflokksins, en nú þegar mótherjarnir Ted Cruz og John Kasich hafa báðir dregið sig í hlé getur fátt stöðvað Trump.

Cruz var búinn að tryggja sér 565 fulltrúa á landsþingi flokksins í júli, Kasich var kominn með 153 og Marco Rubio með 173. Fastlega má búast við að einhverjir þeirra greiði Trump atkvæði sitt.

Trump er hins vegar kominn með 1.047 og þarf ekki nema 230 til viðbótar. Honum er svo spáð góðum sigri í Kaliforníu og New Jersey að það eitt ætti að tryggja honum sigurinn.

„Maðurinn er algerlega siðlaus,” sagði Cruz á þriðjudaginn, þegar kosið var í Indiana, og líkti Trump við óþokkann Biff Tannen úr bíómyndunum Aftur til framtíðar.

Þegar úrslitin lágu fyrir um kvöldið sagðist Cruz draga sig í hlé og í gær gerði John Kasich hið sama.

Sjálfur er Cruz reyndar sagður vera harla vafasamur persónuleiki, og Trump tók óspart þátt í þeirri gagnrýni: „Hann er andstyggilegur náungi,“ sagði Trump um Cruz áður en forkosningar flokkanna hófust. „Engum líkar við hann.”

Í Demókrataflokknum þykir Hillary Clinton nánast örugg með útnefningu, þótt Bernie Sanders hafi unnið óvæntan sigur í Indiana.

„Ég veit að öll gáfnaljósin héldu að við ættum að tapa, en það er greinilega ekki sú niðurstaða sem íbúarnir í Indiana komust að,“ sagði Sanders þegar ljóst var að hann hafði sigrað Clinton með miklum yfirburðum á þriðjudaginn.

„Mér skilst að Clinton haldi að baráttunni sé lokið, en ég er með slæmar fréttir handa henni,“ sagði hann og er staðráðinn í að halda ótrauður áfram.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 5. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×