Samstarf

TripAdvisor veitir Ölgerðinni viðurkenningu annað árið í röð

Stefán Árni Pálsson
Flottur árangur hjá Ölgerðinni.
Flottur árangur hjá Ölgerðinni. vísir
TripAdvisor, stærsti ferðavefur í heimi, hefur veitt Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni sérstaka viðurkenningu annað árið í röð fyrir Taste the Saga, sérsniðna dagskrá fyrir erlenda ferðamenn í Gestastofu sinni, þar sem er farið yfir íslenska bjór- og vínmenningu. TripAdvisor fær yfir 350 milljón heimsóknir í hverjum mánuði og er langstærsti ferðavefur í heimi.  

Það er frábær árangur að fá þessa miklu viðurkenningu einu sinni, hvað þá annað árið í röð, enda kemur hún beint frá notendunum, gestunum, sem fara af eigin frumkvæði og verðlauna okkur með þessum hætti. Ég hef sagt það áður og ítreka að Gestastofan okkar er í raun nýsköpun í rótgrónu fyrirtæki sem teygir anga sína inn í ferðamennsku á Íslandi,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.

„Taste the Saga Olgerdin Brewery Tour er aðeins eitt fjölmargra námskeiða sem boðið er upp á í Gestastofu Ölgerðarinnar en hún hefur nú verið starfrækt í tæp sjö ár.

Í Gestastofunni er jafnframt rekinn Bjórskóli Ölgerðarinnar sem hefur útskrifað á fimmtánda þúsund nemendur, Vínskóli Ölgerðarinnar, Bjórþjónanám Ölgerðarinnar sem er sérsniðið fyrir starfsfólk veitingahúsa, Bragðað á sögunni sem er fyrir stærri hópa og nýjasta námskeiðið er Framhaldsnám Bjórskóla Ölgerðarinnar þar sem áhersla er lögð á handverksbrugghús. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×