Innlent

Tourette-einkenni hurfu eftir náttúrulækningar

Sonur Heiðu greindist með Tourette fyrir tæpum tveimur árum.
Sonur Heiðu greindist með Tourette fyrir tæpum tveimur árum.
Þegar sonur Heiðu Bjarkar Sturludóttur greindist með Tourette heilkenni, leist henni illa á þá hugmynd að setja son sinn á lyf. Hún taldi að strákurinn myndi fitna í kjölfarið og finna fyrir þunglyndiseinkennum. Heiða setti sig því í samband við homopata og ákvað að beita aðferðum náttúrulækninga við að fást við vandann.

Strákurinn greindist einu og hálfu ári síðan. Þá var hann níu ára gamall. Tourette heilkenni lýsir sér þannig að barnið fær mikla kæki, kippi í andliti, ræskingar og hljóð í hálsi. Læknar sögðu Heiðu að ekkert væri hægt að gera til að lækna sjúkdóminn en ef ástandið versnaði þyrfti barnið að fara á lyf.

Heiða skrifaði grein í Morgunblaðið í morgun og lýsir þar þeim aðferðum sem hún kýs að nota. Hún segir að kækirnir aukist ef neytt er gers, hveitis, sykurs eða aspartam. Sonur hennar fái því ekki slík efni. Hann fái samt stundum Agave-sýróp. Hann fái heldur ekkert gos, nema náttúrulegt gos sem innihaldi ekki hvítan sykur. Þau reyni að sneiða hjá unninni vöru og reyni að nota sem mest það sem er lífrænt ræktað. Í sem fæstum orðum, noti þau vörur sem eru auðmeltanlegar og hreinsi magann.

Heiða bendir jafnframt á að mikil sjónvarps- og tölvunotkun sé sérstaklega slæm fyrir þá sem hafa Tourette. Hún segir því mikilvægt að forðast óhóflega notkun þessa tækja. Vissulega fái strákurinn þó að njóta slíks munaðar í hófi, eins og önnur börn.

Heiða segir að strákurinn sé ekki alveg sáttur við þau mörk sem hann fái. Hann taki stundum píslavættisköst. En hann borði hollt fæði, sé rosalega heilbrigður og viti að þessi nýi lífstíll geri honum gott.

Heiða segist sjá augljós merki þess að hugmyndir hennar virki að minnsta kosti jafn vel og lyf. Hún skrifaði grein á vef Tourette-samtakanna og boðaði til fundar til að kynna hugmyndir að baki þeim aðferðum sem hún hafi notað. Hún segir að á milli 100-150 manns séu í félaginu og hún hafi átt von á góðri þátttöku. Einungis þrír hafi mætt. Það sé áhyggjuefni að foreldrar telji nægjanlegt að láta börnin taka lyf og það sé einhver allsherjar lausn.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×