Enski boltinn

Tottenham og Liverpool orðuð við Delph

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Delph vill hlaupa á brott frá Aston Villa
Delph vill hlaupa á brott frá Aston Villa vísir/getty
Enski miðjumaðurinn Fabian Delph hjá Aston Villa gæti farið frá félaginu næsta sumar þegar samningur hans rennur út en  hann hefur hafnað nýju samningstilboði félagsins.

Bæði Liverpool og Tottenham hafa verið orðuð við Delph sem er sagður vilja bíða þar til næsta sumar þegar samningur hans rennur út með að skipta um lið í stað þess að fara í janúar.

Ekki er ólíklegt að einhver félög reyni að kaupa Delph í janúar þegar Aston Villa gæti reynt að selja Delph fyrir einhvern pening í stað þess að missa hann fyrir ekki neitt í sumar.

Delph er 25 ára gamall og hafði unnið sig inn í enska landsliðið í upphafi leiktíðar en hann er meiddur en snýr aftur í desember eftir að hafa farið úr axlarlið.

Lítið gengur hjá Aston Villa sem er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×