Lífið

Tónninn og textinn með Gretu Salóme en hraðinn vinnur þó á móti henni

Birgir Olgeirsson skrifar
Greta Salóme á æfingu í Globen.
Greta Salóme á æfingu í Globen. Vísir/Getty
Spennan fyrir söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, er í mögulega í hámarki hér á Íslandi þar sem fulltrúi Íslendinga, Greta Salome, stígur á svið í Globen í Stokkhólmi í kvöld þar sem hún freistar þess að komast upp úr fyrri undanriðlinum með lagið sitt Hear Them Calling.

Ef horft er á sögu keppninnar er margt með Gretu Salóme. Hún verður til að mynda sextándi flytjandinn á svið í kvöld en venjulega er mesta áhorfið á undankvöldin þegar fjórtándi flytjandinn stígur á svið.

Í fyrra var hins vegar María Ólafsdóttir tólfti flytjandinn á svið í seinni undanriðlinum en komst ekki áfram. Annað sem talið er vænlegt til árangurs í Eurovision er að syngja lag sem er moll. Af síðustu tíu sigurvegurum keppninnar hafa 9 þeirra flutt lög sem eru í moll en eitt þeirra var í dúr. Lag Gretu Salóme er einmitt í moll. 

Þá hafa ýmsir spekingar reynt að rýna í áhorfstölur á YouTube. Ef bara er horft til landanna sem eru með Íslandi í fyrri undanriðlinum er Greta þar í áttunda sæti yfir áhorf á YouTube-rás Eurovision-keppninnar. Tíu lönd komast upp úr riðlinum í kvöld og er Greta samkvæmt þessum tölum örugg áfram í úrslitin, þó svo erfitt sé að horfa of mikið í það.

  1. Malta 4,3 milljónir áhorfa
  2. Aserbaídsjan 3,6 milljónir áhorfa
  3. Armenía 3,4 milljónir áhorfa
  4. Rússland 2,4 milljónir áhorfa
  5. Bosnía Hersegovína 2,3 milljónir áhorfa
  6. Tékkland með 1,7 milljónir áhorfa
  7. Kýpur 1,2 milljónir áhorfa
  8. Grikkland 1,1 milljón áhorfa
  9. Ísland 979 þúsund áhorf
  10. Ungverjaland 961 þúsund áhorf
Einnig hefur verið reynt að horfa til hraða laga, sem sagt hve mörg slög á mínútu þau innihalda. Tempó laga er æði misjafnt en flest þeirra sem fá mikla útvarpsspilun eru um 128 slög á mínútu að jafnaði. 

Söngur Gretu Salóme um kalda nótt gæti aukið líkur hennar á velgengni í keppninni.Vísir/EPA
Í úttekt breska dagblaðsins The Guardian í fyrra kom fram að hraði sé ávísun á „dauða“ í Eurovision. Þau lög sem hafa verið yfir 128 slögum hefur ekki gengið vel. Þó þetta sé ekki hávísindaleg mæling á velgengni laga í Eurovision þá má kannski benda á að keppnin í fyrra var ein sú allra hægasta.

Eitt lag innihélt 128 slög á mínútu, framlag Litháa, framlag Serbíu innihélt 129 slög á mínútu og innihélt framlag Hvíta Rússlands 130 slög á mínútu. Litháen komst upp úr sínum riðli en hafnaði í átjánda sæti í úrslitunum en Hvíta Rússland komst ekki áfram úr sínum undanriðli.

Serbía komst áfram í úrslit og hafnaði þar í tíunda sæti.  Sigurlag Svíþjóðar, Heroes, var 124 slög á mínútu. Lag Gretu Salóme, Hear Them Calling, er hins vegar 135 slög á mínútu.

Í grein The Guardian var þó bent á að þeir flytjendur sem hafa minnst á slæmt veður, þrumur, eldingar, rigningu, gangi oftast vel ef þeir syngja lög sem eru í moll. Greta Salóme syngur lag í moll og minnist á kalda nótt, þannig að spurningin er hvort það muni hjálpa henni. 



Veðbankar
 spá almennt Gretu Salóme góðu gengi, að hún fari í úrslitin en er þó ekki spáð sigri. Er hún oftast sett í kringum 15. sæti en hún hefur hækkað síðan æfingar hófust í Svíþjóð, var lengi framan af í 20. sæti, en hún horfir fram á harða samkeppni vegna fjölda kvenkynskeppenda sem syngja einir á sviði í ár.


Tengdar fréttir

Könnun: Kemst Greta Salóme áfram í kvöld?

Greta Salóme Stefánsdóttir stígur á svið í Globen-höllinni í Stokkhólmi í kvöld og kemur þá í ljós hvort Íslendingar verði með framlag á lokakvöldinu í Eurovision á laugardagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×