Golf

Tiger Woods hissa á ástandinu á St. Andrews

Tiger Woods hefur þrisvar unnið Opna breska meistaramótið í golfi en ekki margir sem veðja á sigur hans að þessu sinni.
Tiger Woods hefur þrisvar unnið Opna breska meistaramótið í golfi en ekki margir sem veðja á sigur hans að þessu sinni. vísir/afp
Tiger Woods segir að St. Andrews völlurinn í Skotlandi sé allt öðruvísi en þegar hann lék síðast á vellinum árið 2010 en Opna breska meistaramótið í golfi fer þar fram í vikunni.

Tiger hefur þrisvar unnið Opna breska, fyrst árið 2000, aftur árið 2005 og svo síðast árið 2006. Tiger mætti til Skotlands í morgun, lék þrjár holur í dag og segist vera hissa á því hve grænn völlurinn er.

"Ég var hissa. Ég sá myndir af vellinum fyrir mánuði síðan og þá var skraufþurr. Ég hélt að hann væri harður og hraður líkt og þegar ég spilaði á St. Andrews. Hann er öðruvísi," segir Tiger.

"Ég þarf að breyta leik mínum lítillega í kringum flatirnar og púttinu mínu. Ég bjóst ekki við að flatirnar yrðu svona mjúkar. Boltinn skildi eftir sig far á flötunum. Ég man ekki til þess að það hafi gerst áður á þessum velli," bætir Tiger við.

Það spáir rigningu í vikunni og Tiger býst ekki við að völlurinn verði hraðari en hann er í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×