Golf

Tiger Woods hætti leik á fyrsta hring á Torrey Pines

Kári Örn Hinriksson skrifar
Woods fékk far upp í klúbbhús eftir að hann hætti leik.
Woods fékk far upp í klúbbhús eftir að hann hætti leik. Getty
Vandræði Tiger Woods halda áfram en þessi fyrrum besti kylfingur heims dró sig úr leik eftir 11 holur á Farmers Insurance mótinu sem hófst í dag.

Mikil pressa hefur verið á Woods undanfarið en um síðustu helgi lék hann versta hring sinn á ferlinum á TPC Scottsdale vellinum þar sem hann endaði í síðasta sæti á Phoenix Open.

Woods var á tveimur höggum yfir pari á Torrey Pines vellinum þegar að hann hætti keppni og það leit út fyrir að hann myndi klára hringinn neðarlega á skortöflunni. Þetta er í þriðja sinn sem Woods hættir keppni í síðustu átta atvinnumótum sem hann hefur tekið þátt í en hann sagði við fréttamenn að hann hefði fundið fyrir verkjum í baki á ný.

Woods tók sér langt frí frá golfi síðasta haust til þess að ná sér af bakmeiðslum sem hafa plagað hann lengi en samkvæmt þessu virðist hann enn ekki hafa náð sér. Næsta mót sem hann er skráður í er Honda Classic sem fer fram í enda febrúar en óvíst er með þátttöku hans þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×