Golf

Tiger í tómu tjóni

Þessi mynd af Tiger í dag segir allt sem segja þarf.
Þessi mynd af Tiger í dag segir allt sem segja þarf. Getty
Undanfarin ár hefur umræðan um að Rory McIlroy sé að taka við af Tiger Woods sem stærsta nafnið í golfinu orðið mun háværari en dagurinn í dag gæti endað hana að fullu.

McIlroy er að keppa á Dubai Desert Classic sem fram fer á Emirates vellinum en hann fór á kostum á öðrum hring í dag, fékk átta fugla og tíu pör og leiðir þetta sterka mót með einu höggi á heilum 14 höggum undir pari.

Á meðan tók Tiger Woods slaginn á Phoenix Open á PGA-mótaröðinni þar sem hann hóf keppnistímabil sitt fyrir árið 2015 formlega. Eftir fyrsta hring í gær var hann mjög neðarlega á skortöflunni og ekki batnaði það á öðrum hring í dag en eftir níu holur var Woods heila átta yfir pari.

Það var á köflum pínlegt að horfa á Woods sem hélt áfram að safna að sér skollum á seinni níu og eftir 18 langar holur voru höggin orðin 82 og Woods 13 höggum yfir pari í heildina.

Það stóð hvorki steinn yfir steini í leik þessa sögufræga kylfings en það sem vakti sérstaka athygli var hversu lélegt stutta spilið var hjá honum, þá sérstaklega vippin.

Hringur Woods í dag er hans versti á atvinnumannaferli hans sem spannar 19 ár en hann situr í síðasta sæti mótsins þegar þetta er skrifað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×