Golf

Tiger byrjaður að spila á ný

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það styttist í endurkomuna.
Það styttist í endurkomuna. vísir/getty
Það er farið að birta til hjá Tiger Woods sem spilaði golf í vikunni í fyrsta skipti í átta mánuði.

Tiger opnaði golfvöll á mánudag sem hann tók þátt í að hanna. Hann spilaði þá nokkrar holur með vini sínum, Mark O'Mearaþ

Tiger spilaði síðast í ágúst en hefur svo verið að glíma við afar erfið meiðsli.

„Ég er svolítið þreyttur en tilfinningin er góð,“ sagði Tiger en hann þurfti meðal annars að fara í bakaðgerð.

„Ég veit að einhverjir sögðu að ég hefði leikið nokkrar holur um daginn en það var ekki satt. Þetta eru mínar fyrstu holur síðan í ágúst. Það var kominn tími á þetta. Þetta er allt að koma hjá mér.“

Kylfingurinn segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um hvenær hann byrji aftur að keppa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×