Golf

Tiger ætlar að vinna fleiri risamót

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. vísir/getty
Fyrir um tíu árum síðan töldu margir það vera formsatriði hjá Tiger Woods að bæta met Jack Nicklaus sem vann 18 risamót á sínum ferli.

Þá fór að halla undan fæti. Tiger vann US Open árið 2008 en hefur síðan ekki unnið risamót. Hann er samtals búinn að vinna 14 á ferlinum en hefur ekki gefist upp.

„Ég hef sætt mig við að ég mun vinna fleiri risamót,“ sagði Tiger við PBS en hafði upprunalega sagt að hann hefði ekki trú á því að hann myndi ná Nicklaus. Hann leiðrétti það síðan.

Tiger var spurður að því hvort Nicklaus væri sá besti frá upphafi.

„Mér finnst ég vera ansi góður líka. Ef við hefðum verið uppi á sama tíma þá hefðum við átt magnaðar rimmur. Ég hef alltaf litið upp til hans og ég horfði snemma á þetta met hans. Það var stóra markmiðið og flottasta metið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×