Golf

Þurfa að halda einbeitingunni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Strákarnir léku vel á fyrsta hring í Slóvakíu
Strákarnir léku vel á fyrsta hring í Slóvakíu Vísir/GSÍmyndir.net
Íslensku kylfingarnir fóru flestir vel af stað í gær á Evrópumeistaramóti áhugamanna sem fer fram í Slóvakíu. Haraldur Franklín Magnússon úr Golfklúbbi Reykjavíkur er ásamt þremur öðrum kylfingum efstur á átta höggum undir pari.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er á fimm höggum undir pari eftir að hafa leikið seinni níu holur vallarins á sjö höggum undir pari en hann fékk tvo erni á hringnum. Þá er Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili höggi á eftir Guðmundi í tuttugasta sæti.

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari var sáttur við spilamennskuna í dag en hann er með strákunum í Slóvakíu til stuðnings.

„Þetta var frábær byrjun og frábær spilamennska hjá flestum af strákunum í dag. Völlurinn er krefjandi, hann gefur og tekur en strákarnir leystu það vel í dag. Það er gott fyrir sjálfstraust þeirra að spila gegn þessum bestu áhugamannakylfingum,“ sagði Úlfar sem sagðist ætla að halda sínum mönnum á jörðinni.

„Þeir þurfa að halda rétt á spöðunum og halda einbeitingunni. Völlurinn getur auðveldlega refsað ef kylfingar missa einbeitinguna.“

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili, Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness og Andri Þór Björnsson hófu einnig leik í gær en náðu sér ekki á strik og þurfa þeir að vinna upp þó nokkur högg ætli þeir sér að komast í gegn um sextíu manna niðurskurðinn eftir morgundaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×