Handbolti

Þrjú íslensk mörk í sigri Mors-Thy

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðmundur Árni.
Guðmundur Árni. Mynd/Heimasíða Mors-Thy
Guðmundur Árni Ólafsson og Róbert Aron Hostert komust báðir á blað í öruggum 28-19 sigri Mors-thy á Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Þetta var aðeins annar sigur Mors-Thy á tímabilinu.

Guðmundur Árni og Róbert fengu báðir að spila í dag en Mors-Thy hafði undirtökin í leiknum allt frá fyrstu mínútu. Leiddu Guðmunur, Róbert og félagar í hálfleik 16-10 og bættu við forskotið í seinni hálfleik.

Lauk leiknum með 9marka sigri Mors-Thy en með sigrinum skaust Mors-Thy upp fyrir Ribe-Esbjerg í töflunni. Guðmundur Árni skilaði tveimur mörkum í leiknum en Róbert aðeins einu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×