Sport

Þrjátíu prósent allra íþróttaliða í Rússlandi notuðu meldóníum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Maria Sharapova.
Maria Sharapova. Vísir/Getty

Vitaly Mutko, Íþróttamálaráðherra Rússa, segir að notkun lyfsins meldóníum hafi verið gríðarlega algeng meðan rússnesk íþróttafólks en lyfið fór á bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins, WADA, þann 1. janúar 2016.

Rússneska tennisdrottningin Maria Sharapova er frægasti íþróttamaðurinn sem hefur fallið á lyfinu en hún er langt frá því að vera sú eina sem hefur fallið á fyrstu mánuðunum eftir að lyfið var bannað.

Sjá einnig:Tennisdrottning hrynur af stalli

Vitaly Mutko fór svo langt með að halda því fram að þrjátíu prósent allra íþróttaliða í Rússlandi hafi notað meldóníum áður en það var sett á bannlistann.

Um 40 rússneskir íþróttamenn gangast þessa dagana undir rannsókn vegna meldóníum-neyslu og Vitaly Mutko segir sig og ráðuneyti sitt ætla að aðstoða þessa íþróttamenn.

„Þegar við erum að tala um meldóníum þá er mikilvægt að sýna yfirvegun og takmarka skaðann. Við verðum líka að aðstoða rússneska íþróttamenn sem eru undir rannsókn," sagði Vitaly Mutko við Interfax fréttastofuna.

Sjá einnig:Svona greindi Sharapova frá lyfjaprófinu

Vitaly Mutko er jafnframt á því að rússnesk yfirvöld hafi stjórn á málunum og geri sér grein fyrir því hverjir þurfa að gangast undir lyfjapróf. „Allt að þrjátíu prósent rússneskra íþróttaliða notuðu meldóníum hér áður fyrr," sagði Mutko við Interfax.

Rússar eru í miklum meirihluta af þeim íþróttamönnum sem hafa fallið á lyfjaprófi vegna neyslu meldóníum. Frægust eru þau Maria Sharapova og skautahlauparinn Pavel Kulizjnikov.

Rússnesk frjálsíþróttafólk er í banni frá öllum alþjóðlegum keppnum vegna óviðunandi lyfjaeftirlits í landinu og óvissa er um hvort þau fái að vera með á Ólympíuleikunum í Ríó í haust.  Meldóníum-vandræði Rússa er örugglega ekki að hjálpa þeim til að losna undan því banni Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins.


Tengdar fréttir

Tennisstjarna í sjokki vegna fréttanna af Sharapovu

Kanadíska tennisstjarnan Eugenie Bouchard þekkir vel til Mariu Sharapovu sem var hennar átrúnaðargoð þegar hún var yngri. Sjokkið var því mikið þegar Maria Sharapova tilkynnti heiminum það í síðustu viku að hún hefði fallið á lyfjaprófi.

Hvað er meldóníum?

"Það er lyf sem er aðallega notað við hjartasjúkdómum og skorti á blóðflæði til hjartans,“ sagði Birgir Sverrisson, starfsmaður lyfjaeftirlits ÍSÍ, í samtali við íþróttadeild í gær um meldóníum, lyfið sem felldi Mariu Sharapovu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×