Körfubolti

Þrír landsliðsmenn í körfubolta eiga afmæli í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Raggi, Kári og Helgi í miðjum leik.
Raggi, Kári og Helgi í miðjum leik. vísir
Dagurinn 27. ágúst er merkilegur í körfuboltaheiminum hér innanlands en í dag eiga þrír landsliðsmenn afmæli.

Ragnar Nathanaelsson er 25 ára í dag en hann er fæddur árið 1991. Helgi Magnússon er 34 ára í dag en hann lagði körfuboltaskóna á hilluna í vor þegar hann varð Íslandsmeistari með KR þriðja árið í röð.

Kári Jónsson er síðan 19 ára í dag en hann er á leiðinni út í Háskólaboltann í Bandaríkjunum og spilar þar með Drexel-háskólanum.

Allir eiga þeir sameiginlegt að vera eða hafa verið landsliðsmenn í körfubolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×