Innlent

Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur í Norðlingaholti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Nokkurra bíla árekstur varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Selásbrautar - skammt frá Hundavaði í Norðlingaholti nú um klukkan 17.

Að sögn vakthafandi varðstjóra hjá slökkviliðinu voru þrír fluttir á slysadeild. 

Hvort um alvarleg meiðsl sé að ræða liggur ekki fyrir að svo stöddu en slökkvilið þurfti i það minnsta ekki að beita klippum á vettvangi.

Lögregla og sjúkralið eru á slysstað og lokað var fyrir umferð vegna slyssins. Nánari upplýsingar liggja fyrir síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×