Erlent

Þriggja ára drengur skaut á foreldra sína

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Drengurinn fann skammbyssu í tösku móður sinnar.
Drengurinn fann skammbyssu í tösku móður sinnar. Vísir/Getty
Þriggja ára gamall drengur skaut á föður sinn og ólétta móður á hótelherbergi í Albuquerque í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum í nótt. CNN greinir frá.

Að sögn lögreglunnar tók drengurinn skammbyssu úr tösku móður sinnar og skaut einu skoti. Kúlan virðist hafa farið í gegnum mjöðm föðurins og svo í öxl móðurinnar. Hún er komin átta mánuði á leið.

Faðirinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar og útskrifaður stuttu síðar en móðirin liggur á spítala. Ástand hennar er sagt stöðugt en ekki er vita með líðan barnsins sem hún gengur með.

Drengurinn er nú í umsjá barnaverndaryfirvalda, ásamt tveggja ára gamalli systur sinni, sem einnig var í hótelherberginu þegar atvikið átti sér stað. Lögreglan skoðar nú hvort foreldrarnir verði ákærðir fyrir vanrækslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×