Viðskipti innlent

Þorsteinn ráðinn forstjóri Opinna kerfa

Atli Ísleifsson skrifar
Þorsteinn G. Gunnarsson var stjórnarformaður Advania, meðstofnandi og stjórnarmaður í Cooori ehf.
Þorsteinn G. Gunnarsson var stjórnarformaður Advania, meðstofnandi og stjórnarmaður í Cooori ehf. Mynd/Opin kerfi
Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa frá og með 1. júní.  Þorsteinn tekur við starfinu af Gunnari Guðjónssyni sem gegnt hefur stöðu forstjóra frá árinu 2008. Gunnar mun nú snúa sér að öðrum verkefnum.

Þorsteinn Gunnarsson er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands, og með meistarapróf frá University of Washington. Í tilkynningu frá Opnum kerfum segir að Þorsteinn sé ekki ókunnugur Opnum kerfum þar sem hann starfaði frá 1996 til 2008 sem framkvæmdastjóri ráðgjafar- og þjónustusviðs og síðast sem forstjóri.

„Þorsteinn var stjórnarformaður Advania, meðstofnandi og stjórnarmaður í Cooori ehf.  Hann hefur verið virkur í nýsköpunarsamfélaginu, leiddi sameiningu Klaks og Innovit og er stjórnarformaður sameinaðs félags, Klak-Innovit. Þorsteinn er giftur Herdísi Rafnsdóttur og eiga þau saman drengina Rafn Viðar og Gunnar Smára.

Skipulagsbreytingar urðu hjá félaginu í október 2014 þar sem svið voru sameinuð og framkvæmdastjórum fækkað.  Í núverandi framkvæmdastjórn félagsins sitja, María Ingimundardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs, Guðbrandur R. Sigurðsson, framkvæmdastjóri sölu- & markaðssviðs, Elín Gränz, framkvæmdastjóri mannauðs- & þjónustusviðs, Friðþjófur Bergmann, framkvæmdastjóri vöruþróunar- & verkefnasviðs og Kristján Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármála- & innkaupasviðs.“

Opin kerfi var stofnað árið 1985 og fagnar því 30 ára afmæli á þessu ári. „Fyrirtækið hefur meðal annars verið dreifingar- og þjónustuaðili fyrir HP allan þann tíma og hefur á að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Opin kerfi er samstarfs- og þjónustuaðili Verne Global þar sem hýsingarlausnir fyrirtækisins og innri kerfi eru rekin í einu fullkomnasta gagnaveri heims í dag. Hjá félaginu vinna um 100 manns og árleg velta er um 5 milljarðar króna,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×