Menning

Þórarinn stórtækur á afmælisári

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Þórarinn Eldjárn. Þrjár bækur og drottningardrápa á afmælisárinu. Geri aðrir betur.
Þórarinn Eldjárn. Þrjár bækur og drottningardrápa á afmælisárinu. Geri aðrir betur. Vísir/Valli
Þórarinn Eldjárn fagnar 40 ára rithöfundarafmæli sínu í ár með útgáfu þriggja bóka. Nú undanfarið hafa komið út barnaljóðabókin Fuglaþrugl og nafklakrafl og þýðing hans á sígildu pólsku söguljóði, Örleifur og hvalurinn. Á vordögum kom út ljóðabókin Tautar og raular, sem hefur mælst svo vel fyrir að hún er krossbúin hjá útgefanda og von er á annarri prentun.



Til að kóróna árið lét Þórarinn sig ekki muna um að yrkja drápu eina mikla sem hann flutti Margréti Danadrottningu við góðar undirtektir hátignarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×