Erlent

Þjóðverjar leiðrétta tölur yfir fjölda hælisleitenda

Atli Ísleifsson skrifar
Innanríkisráðherrann Thomas de Maizière fyrr í dag.
Innanríkisráðherrann Thomas de Maizière fyrr í dag. Vísir/AFP
Þýsk yfirvöld hafa leiðrétt tölur yfir fjölda hælisleitenda sem komu til landsins á síðasta ári úr 1,1 milljón manna niður í 890 þúsund.

Innanríkisráðherrann Thomas de Maizière greindi frá þessu á fréttamannafundi fyrr í dag.

Ráðherrann segir að fyrri talan hafi verið of há og er það rakið til þess að margir hælisleitendur hafi verið skráðir á mörgum stöðum, hafi flust til annarra Evrópuríkja eða snúið aftur til heimalanda sinna.

Málefni flóttafólks hafa verið áberandi í Þýskalandi síðustu misserins þar sem margir hafa gagnrýnt Angelu Merkel Þýskalandskanslara fyrir að hleypa svo mörgum flóttamönnum inn í landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×