Handbolti

Þjálfari í Olís-deildinni réðst að dómurum sem áhorfandi með „óbótaskömmum“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir/ernir
Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar í Olís-deild karla í handbolta, gæti átt yfir höfði sér refsingu fyrir framkomu sína í garð dómara á leik Stjörnunnar U og KR í 1. deild karla. Þar var Einar ekki að þjálfa heldur var hann áhorfandi á leiknum.

Fram kemur í úrskurði aganefndar HSÍ sem hittist á reglubundnum þriðjudagsfundi sínum í gær að Einar „réðst að dómurum með óbótaskömmum eftir að leik Stjörnunnar U og KR í M.fl.ka. 24.03.2017 lauk“ eins og segir í greinargerð fundarins.

Einar er sagður hafa sýnt af sér „óíþróttamannslega framkomu gagnvart dómurum.“ Þessi litríki þjálfari var ekki þátttakandi í leiknum og var ekki á leikskýrslu. Því hafði aganefnd HSÍ ekki leyfi til að refsa honum á fundi í gær.

„Þar sem Einar var ekki þátttakandi í leiknum og ekki á leikskýrslu var ekki unnt að beita útilokun og ekki hefur aganefnd heimild til pesónubundinna refsinga fyrir aðra en þátttakendur í leiknum,“ segir í greinargerð aganefndar.

Þar stendur enn fremur að úrskurðurinn verður í samræði við V: kafla 17. greinar í reglugerð HSÍ um agamál og er Stjörnunni gefinn kostur á því að skila inn greinargerð til varnar Einari. Málinu var frestað til næsta fundar.

Þess má geta að Stjarnan U, sem er í áttunda sæti 1. deildar, vann leikinn á móti KR sem er í þriðja sæti deildarinnar, 34-30.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Einar kemur sér í vandræði  á tímabilinu en í október í fyrra var hann úrskurðaður í eins leiks bann fyrir framkomu sína í garð dómara í leik Stjörnunnnar og Aftureldingar.

Einar gekk enn lengra og krafðist afsökunarbeiðni frá dómurum leiksins í viðtali við Vísi: „Ég get ekki fengið annað á tilfinninguna en að það sé verið að dæma gegn okkur,“ sagði hann meðal annars en viðtalið fór ekki vel í forsvarsmenn HSÍ og aganefndina. 

Fyrir þessi ummæli fékk hann annað eins leiks bann en liðið vann svo ekki í sjö leikjum í röð eftir að Einar var úrskurðaður í leikbannið.

Þegar tvær umferðir eru eftir af Olís-deild karla er Stjarnan í níunda og næst neðsta sæti með 19 stig, stigi minna en Fram og á leik á móti Gróttu í Hertz-höllinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×