Erlent

Þingmenn breska þingsins ræða heimsókn Trump til landsins: „Maðurinn er rasisti og karlremba“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þingmenn breska þingsins voru flestir mjög andsnúnir komu Trump.
Þingmenn breska þingsins voru flestir mjög andsnúnir komu Trump. Vísir/Getty
Þingmenn neðri deildar breska þingsins biðu í röðum í dag til þess að komast í ræðustól, þar sem verið var að ræða heimboð Theresu May, forsætisráðherra landsins, til Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Flestir voru sammála um það að maðurinn væri „rasisti og karlremba.“ May bauð Trump í heimsókn þegar hún var stödd í Washington nýlega en enn hefur ekki verið ákveðið hvenær Trump mun sækja landið heim. Guardian greinir frá.

Flestir þingmannanna voru sammála um það að bresk yfirvöld ættu ekki að bjóða forsetanum heim. Á meðan umræðurnar fóru fram söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan þinghúsið til að mótmæla heimsókninni.

Þingmenn báru forsetann saman við „uppstökkan krakka“ og margir efuðust um að forsetinn hefði háa greindarvísitölu.

Þetta kom fram í umræðunum í dag sem tóku þrjár klukkustundir en þingið varð að ræða heimboð Trump, þar sem 1,8 milljónir Breta skrifuðu undir undirskriftarlista sem biðlaði til Theresu May, forsætisráðherra landsins um að afturkalla boð sitt til Trump. Samkvæmt hefðum innan breskrar stjórnsýslu þarf breska þingið að ræða málið þegar svo mikill fjöldi skrifar undir undirskriftalista þess efnis. 

Svo margir þingmenn vildu komast að í ræðustól þingsins, að takmarka þurfti ræðutíma hvers og eins við fimm mínútur.

Alex Salmond, þingmaður Skoska þjóðarflokksins, sagði að sér þætti erfitt að ákveða hvort sér finndist heimboðið vera frekar siðlaust eða heimskulegt.

„Dæmið um undirlægjuháttinn sem við sýnum þessum manni, er sú stund þegar forsætisráðherrann lét mynda sig við að leiða forsetann. En að bjóða honum í heimsókn í nafni „sameiginlegra gilda,“ lætur mér verða óglatt. Nákvæmlega hvaða „sameiginlegu gildi“ er átt við?“

Aðrir þingmenn, þá sérstaklega úr röðum Íhaldsflokksins fóru sér hægar í gagnrýni á Trump. Þar á meðal var Adam Holloway, þingmaður fyrir Gravesham sýslu en hann sagði að þrátt fyrir að sér hefði þótt umrætt innflytjendabann Trump fáránlegt, „þá væri það afar upplífgandi“ að sjá stjórnmálamann standa við gefin loforð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×