Handbolti

Þess vegna er fimmta sætið svona mikilvægt fyrir Dag og Guðmund

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson.
Dagur Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson. Vísir/Eva Björk
Ulrik Wilbek, yfirmaður landsliðsmála hjá danska handboltasambandinu, hefur reiknað það út að það sé mjög mikilvægt að ná fimmta sætinu á HM í Katar.  Danskir fjölmiðlar fjalla um þetta í dag.

Danir duttu út úr leik í átta liða úrslitunum á HM í gær og sama hlutskipti var hjá þýska landsliðinu. Íslensku þjálfararnir Guðmundur Guðmundsson (Danmörk) og Dagur Sigurðsson (Þýskaland) hafa góða ástæðu til að undirbúa sína menn vel fyrir baráttuna um fimmta sætið.

Þetta snýst núna allt um það hjá liðunum tveimur að tryggja sig inn í forkeppni Ólympíuleikanna í Ríó 2016 en hún fer fram vorið 2016. Heimsmeistararnir tryggja sér sæti á ÓL en liðin í öðru til sjöunda fá sæti í forkeppninni.

Evrópumeistararnir á næsta ári fá líka sæti á ÓL sem og Asíumeistararnir. Katar er komið í undanúrslitin á HM í fyrsta sinn og vinni liðið Asíukeppnina á næsta ári þá ætti liðið í áttunda sæti einnig að komast í forkeppnina.

Hingað til hafa liðin í öðru, þriðja og fjórða sæti fengið að halda sinn riðil í undankeppninni og það er fyrirkomulag sem evrópska sambandið vill hafa áfram þótt að IHF hafi meiri áhuga á því að undanriðlarnir fari fram í þremur mismundandi álfum.

Verði sama fyrirkomulag áfram og Katar tryggir sér Asíumeistaratitilinn þá ætti liðið í fimmta sætinu að fá að halda sinn riðil á næsta ári. Það gæti haft mikið að segja í baráttunni um ÓL-sæti.

Þetta er líka spurning um að lenda ekki í of erfiðum riðli. Liðið í sjötta sæti lendir í riðli með bronsliði HM sem gæti orðið annaðhvort Spánn eða Frakkland. Tryggi Katarliðið sér sætið á ÓL með því að vinna Asíukeppnina kemur það hugsanlega í hlut liðsins í sjöunda sæti að lenda með annaðhvort Spáni eða Frakklandi í riðli.  Sjötta og sjöunda sætið eru því ekki alltof spennandi.

Það er því ekkert skrýtið að Ulrik Wilbek og danska handboltasambandið veki athygli sinna manna á því hversu mikilvægt það sé að lenda í fimmta sætinu.  Danir mæta Slóvenum á morgun og Þjóðverjar spila við Króata. Sigurvegararnir spila um fimmta sætið en tapliðin um það sjöunda.



Sætin tólf sem eru í boði í handboltakeppni Ólympíuleikanna 2016:

Gestgjafi: Eitt sæti (Brasilía)

Heimsmeistari í Katar 2015: Eitt sæti

Ameríkumeistari í Kanada 2015: Eitt sæti

Asíumeistari í Katar 2015: Eitt sæti

Afríkumeistarar í Egyptalandi 2015: Eitt sæti

Evrópukeppnin í Póllandi 2016: Eitt sæti

1. riðill í forkeppni ÓL 2016: Tvö sæti

2. riðill í forkeppni ÓL 2016: Tvö sæti

3. riðill í forkeppni ÓL 2016: Tvö sæti




Fleiri fréttir

Sjá meira


×